Skissa af höfn þar sem þrír bátar liggja að bryggju - óvíst hvar. Í forgrunni eru tveir ljósastaurar og varnargarður hlaðinn úr grjóti. Á ljósastaurnum fremst stendur mávur. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Götumynd - óvíst hvar - mögulega í Þingholtunum. Á götunni keyrir vörubíll og manneskja gengur eftir göngustíg til hægri. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Landslagsmynd með hólum í forgrunni en bláleit fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Litaskemað í myndinni er fremur fjólublátt - blátt og brúnt. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Landslagsmynd - mögulega af Heiðmörk. Í forgrunni er runnagróður í haustlitum - þ.e. rauður og gulur - og í bakgrunni er fjall - mögulega Esjan. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Myndefnið er bátur sem stendur á landi. Á bátnum stendur manneskja og baksvip annarrar manneskju má sjá í forgrunni. Skipið virðist vera í Elliðárvogi en handan við voginn má sjá Grafarvog og Úlfarsfell. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Landslagsmynd líklegast úr Skagafirði. Þá er horft yfir Héraðsvötnin á Blönduhlíðarfjöllin. Myndin er skissuð í björtum litum. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Myndefnið er líklega Gönguskarðsá - norðan við Sauðárkrók. Sjónarhornið er þar sem árfarvegurinn tekur stóra sveigju áður en hún rennur til sjávar. Í bakgrunni má sjá Drangey - Málmey og Þórðarhöfða. Myndin gæti verið frá 1940-1950.
Landslagsmynd þar sem í forgrunni er gil. Handan við gilið er mögulega horft yfir fjörð og svo fjöll. Staðsetning ókunn. Myndin er helst máluð í dökk fjólubláu - bláu - grænu og gulu. Myndin gæti verið frá 1950-1960.
Hestar á beit í landslagi. Einn hesturinn lítur til baka - hinn hestinn má sjá fyrir miðju myndar en í bakgrunni eru há bláleit fjöll. Staðsetning ókunn - mögulega í Skagafirði. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Landslagsmynd þar sem nokkur grenitré eru í forgrunni en fjöll í bakgrunni. Myndefnið er líklegast úr Skagafirði þar sem fjöllin líkjast Blönduhlíðarfjöllunum. Myndin er frá 1981. Á bakhliðinni er gróf skissa af rauðum bát sigla inn fjörð umkringd fjöll - óvíst hvar.
Myndefnið er sólsetur yfir dökkbláu hafi. Í forgrunni má sjá svarta fjöruna en til hægri er vegur sem hlykkist á hlíð sem kemur aðeins inn á myndina. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Módelteikning. Nektarmynd séð framan á konu - líklega Ástu Sigurðardóttur skáldkonu. Myndin er sennilega frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Módelteikning. Séð framan á nakta konu með hendur á höfði - konan er líklega Ásta Sigurðardóttir skáldkona. Myndin er sennilega frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Módelteikning. Séð framan á nakta konu með hendur á höfði - konan er líklega Ásta Sigurðardóttir skáldkona. Myndin er sennilega frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Módelteikning. Gróf skissa af framhlið konu - mögulega Ástu Sigurðardóttur skáldkonu. Myndin er sennilega frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Módelteikning. Skissa af framhlið og vangasvip konu - mögulega Ástu Sigurðardóttur skáldkonu. Myndin er sennilega frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Módelteikning vangasvip naktrar konu sem situr á stól. Konan á myndinni er mögulega Ásta Sigurðardóttir skáldkona. Myndin er sennilega frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Módelteikning af naktri konu. Konan gæti mögulega verið Ásta Sigurðardóttir skáldkona. Myndin er sennilega frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Skissa af manni sem gengur með staf og pípuhatt úti á götu. Einnig götumynd sem búið er að krassa yfir. Myndin gæti verið frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Hægra megin er smágerð skissa af naktri konu sem stendur handan við kaffiborð. Vinstra megin er önnur skissa með uppstillingu á kaffiborði. Myndin gæti verið frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Nokkrar smáar skissur - m.a. andlitsmyndir af gömlum manni og barni - torfbæ - landslagi - bíl - hesti með kerru og annað krot. Myndin gæti verið frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Skissa af tveimur nöktum konum. Einnig lítil skissa af könnu o.fl. krot. Myndin gæti verið frá námsárum hans í Myndlistar- og handíðarskólanum 1945-1948.
Skissur af fullorðnum manni með skegg. Skissurnar eru teiknaðar með grænni og rauðri krít. Myndin er líklega frá menntaskólaárum hans í Menntaskólanum á Akureyri 1942-1945.
Teikning af vöðvum. Einnig lítil skissa af andliti og efst á blaðið er skrifað “hannes“. Myndin er úr líffræðitímum frá menntaskólaárum hans í Menntaskólanum á Akureyri 1942-1945.