Bátur í Drangeyjarfjöru. Báturinn heitir Björg SK 31. Aftan á mynd stendur einnig Ottó og Elli, báturinn dregin upp með talíu. Vélbáturinn Björg SK.31 dregin á land með talíu á Drangeyjarfjöru 1943. Erlendur og Ottí Þorvaldsson voru aðeins tveir við Eyjuna það vor og urðu að draga bátinn á hliðinni svo báðir gætu verið við dráttinn. Allan útvegin urðu þeir að selflytja á bátnum frá Sauðárkróki svo og fuglinn til lands.
Tveir bátar með farþegum við bryggju. Fjöldi fólks stendur á bryggjunni, nokkrir með reiðhjól. Sennilega Akureyri frekar en Húsavík. Á húsinu fyrir miðri mynd stendur "Maskinverksted."
Mynd tekin í Drangeyjarfjöru 30. júní 1951. Pálmi Sighvatsson, Þorsteinn Andrésson Sigurfinnur frá Steini, Jón Andrésson, Erlendur og Hermann Ragnarsson.
Verið að flytja Nótabát á Aðalgötu Sjá má Aðalgötu 17 og 19. Svangrund og Apótek. Bíllinn er SK 25, bíll Hjartar Laxdal en hann mun hafa stjórnað flutningum. Myndin er tekin fyrir árið 1940.
Innbundin bók sem heldur skrá yfir skip og báta í Skagafirði árin 1904-1943. Í skránni kemur m.a. fram skrásetningardagur, skipsheiti, stærð, eigendur, byggingarstaður, byggingarefni og fleira.
Á síld um borð í Skagfirðingi SK 1. Frank Michesl í félagi við fleiri menn stóður fyrir kaupum á skipinu frá Belgíu. Útgerð skipsins reyndist afar erfið, en mikil atvinnubót varð af því. Hvíldu ábyrgðirnar að mestu á Michelsen og allt valt á að síldin veiddist. Skagfirðingur var síðast gerður út frá Sauðárkróki árið 1940. Vinstramegin bakatil Sigvaldi Þorsteinn Sveinn Nikódemusson (1908-1990) Tilgáta um Sighvat Pétursson Sighvats (1922-1991) Lengst til vinstri Óskar Magnússon