Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Með liggur reikningur fyrir tjaldaleigu. Ástand skjalsins er gott.
Tillagan er teiknuð á pappírsörk í folio stærð. Með liggur póstkort með mynd af Draney, ritað af Ólafi Jóhannessyni á Naustum. Ástand teikningarinnar er gott. Á póstkortinu er svartur blettur, sennilega brunablettur.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar þátttakendur á Alþingshátíðinni úr framhluta Akrahrepps. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á 1 pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur önnur vélrituð pappírsörk í folio stærð. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Ástand skjalsins er gott.
Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands. Við borðið f.v. Brynja Kristjánsdóttir - Ingibjörg Sveinsdóttir - Árni Gislason - Vigdís Finnbogadóttir - úlfar Sveinsson - Elin Tómasdóttir - Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiður Ormsdóttir.
Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir (í gulri dragt) í opinberri heimssókn í Skagafirði. T. v. Stefán Pedersen (í bláum gallabuxum) Sér í bakið á Þorsteini Ásgrimssyni ftá Varmalandi (í ljósum frakka)
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar kosningu í nefnd til undirbúnings landbúnaðarsýningar í tengslum við Alþingishátíðina. Með liggur eyðublað þar sem viðtakandi er beðinn um að taka sæti í nefndinni. Ástand skjalanna er gott.
Greinargerðin er handskrifuð á tvær pappírsarkir í folio stærð, alls 5 skrifaðar síður. Hún varðar undirbúning vegna Alþingishátíðar 1930. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Um er að ræða afrit gert með kalkipappír. Það varðar kosningu undirbúningsnefndar sýslunnar vegna Alþingishátíðarinnar. Ástand skjalsins er gott.
Grein skrifuð í tilefni af 75 ára afmæli UMSS þar sem farið er yfir sögu félagsins. Greinin var send riti ÍSÍ það sama ár en var ekki birt fyrr en 1987 og þá mjög stytt.
Afmælishátíð á Sauðárkróki sumarið 1997, en þá voru 140 ár frá því bærinn varð verslunarstaður og 90 ár frá því hann varð sérstakt sveitarfélag og 50 ár frá því hann varð kaupstaður. Langfjölsóttasta samkoma afmælisársins var Geirmundarkvöld í íþróttahúsinu, þar sem yfir 1000 manns mættu, þar á meðal forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir. Sveiflukóngurinn og hans fólk fór á kostum. Söngkonan er Ásdís Guðmundsdóttir (1963-) og Geirmundur Valtýsson (1944-). lengst t.h. aðrir óþekktir.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar héraðshátíð í Garði í Hegranesi 1930. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Varðar þátttöku íbúa í Skefilsstaðahreppi í Alþingishátið. Svo virðist sem listi hafa fylgt með en glatast. Ástand skjalanna er gott.
Tilgáta: Sjómannadagur á Sauðárkróki. Gamla bryggjan austan Aðalgötu enn til staðar. Aðfallspípa í stöðfarhúss Gönguskarðsárvirkjunar áberandi fjær t.h. (ca. 1950-1960).
Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður í ræðustól í Grænuklauf á 17. júní 1958. Fjær til vinstri f.v. Marteinn Friðriksson, Árni M. Jónsson og Kristján Linnet Jónsson (Kiddi Bif).
júní 1958. Hátíðarhöld í Grænuklauf. Eyþór Stefánsson í ræðustól. T.v. Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður (dökkklæddur), þá Adolf Björnsson, Friðrik Friðriksson og (tilg.) Áslaug Sigfúsdóttir (í samlaginu).
50 ára afmæli Sögufélagsins 1987 haldið í Safnahúsinu. Sjá 01. Leikarar úr Leikfélagi Sauðárkróks leiklesa úr verkum félagsins. F.v. Kristján Skarphéðinsson. Hilmir Jóhannesson, Erling Pétursson, Hulda Jónsdóttir, Elsa Jónsdóttir og Helga Hannesdóttir.