Hreppaskilabók fyrir Akrahrepp í Skagafjarðarsýslu 1911-1930. Ýmsar skrár, til að mynda: -Skýrsla um búnaðarástand -Skýrsla um framtal til lausafjártíundar á vor- og hausthreppaskilum -Skrá um skattgilda inntekt -Skrá um utanhreppsmenn er inntekt hafa frá Akrahreppi
Í fyrir bók stendur: Í þessu blaði stendur; "Gaman og Alvara kemur út á hálfsmánaðar fresti um 6. blöð í senn. Blaðið flytur sögur, kver, stöku, ritgerðir, skrítlur, spurningar og svör, vísuparta og botna o.m.m. fl. sem allt er vandað bæði að efni og búningi. Ekkert blað á landinu fjallar um eins mörg málefni og þetta blað þrátt fyrir hina mörgu erfiðleika sem það á við að stríða áður en það getur komið fyrir almenningssjónir. Undir þetta skrifar "ritstjóri".
Bréf Lárusar Stefánssonar Thorarensen sýslumanns Skagfirðinga til hreppstjóranna í Akrahreppi varðandi bréf sem hann fékk frá Þórólfi B. Vigfússyni. Þórólfur hafi fengið bréf frá Sölva Þorkelssyni varðandi skriður sem féllu í mars.
Hreppaskilabók fyrir Akrahrepp í Skagafjarðarsýslu 1889-1911. Ýmsar skrár, til að mynda: -Skýrsla um búnaðarástand -Skýrsla um framtal til lausafjártíundar á vor- og hausthreppaskilum -Skrá um skattgilda inntekt -Skrá um utanhreppsmenn er inntekt hafa frá Akrahreppi
Sveitarblað sem hefur gengið á milli bæja í Blönduhlíð. Erfitt að átta sig á hver hefur forgöngu um stofnun blaðsins en svo virðist sem það hafi verið til áður og sé endurrisið kringum 1919. Fyrri skráning (handritasafn HSk) segir: Stígandi, sveitar- eða lestrarfélagsblað í Út-Blönduhlíð, að því er virðist. Ritað 1919 til 1925
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir, sem hver um sig er opna úr bók. Efst á fyrstu örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret 1830." Hinar tvær arkirnar hanga saman á bandi. Á þær eru færðar athugasemdir varðandi yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir, sem hver um sig er opna úr bók. Efst á fyrstu örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret 1831." Á hinar tvær arkirnar eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Sú stærri er í 2xfolio stærð en sú minni í A5 stærð. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1841 til Fardag 1842." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1843 til Fardag 1844." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.