Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri sundlaug á Hólum en hún var vígð vorið 1982. T.v. má þekkja Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og konu hans Ingibjörgu Kolka og svo Kristján Skarphéðinsson. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er næstur á myndinni og Gísli Pálsson frá Hofi er með skófluna.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar kostnað við gufubaðsstofu og fleira í sundlaugarhúsinu í Varmahlíð. Ástand skjalanna er gott.
Stundaskrá með yfirliti yfir afnot ákveðinna hópa af sundlaug Sauðárkróks árið 2002 og samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar sundkennslu við Barðslaug. Með liggur viðurkenning á greiðslu til Páls Jónssonar vegna sundkennslu. Ástand skjalsins er gott.
Kvittunin er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Hún varðar sundkennslu Páls í Holts-og Haganeshreppum. Með liggur kvittun fyrir greiðslu vegna afnota af lauginni á Lambanes-Reykjum. Ástand skjalsins er gott.