Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Halldór Magnússon.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Halldór Magnússon.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, á Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Halldór Magnússon.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Halldór Magnússon.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Halldór Magnússon.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Halldór Magnússon.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Haldið í taum á hesti.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stóð fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði í júní 2009. Haldið í taum á hesti.
Ljósmyndasafn úr eigu Sigurlaugar Jónsdóttur og Gunnars Helgasonar. Í safninu eru 20 litmyndir, í því eru auk þess þrjár filmur og 9 svart hvítar ljósmyndir. Flestar ljósmyndirnar eru teknar í 75 ára afmæli Jóns Nikodemussonar þann 7. apríl 1980. Einnig eru nokkrar myndir sem teknar eru á Tyrfingsstöðum og Gilsbakka á Kjálka. Allar litmyndirnar eru merktar á bakhliðinni en minna er um það með pappírskópíurnar.
Safn sem inniheldur ýmisleg smáprent, sem dæmi; auglýsingabæklingar, einblöðungar, dagskrár, yfirlit yfir viðburði og kynningarefni er tengjast viðburðum og söfnum í Skagafirði. Úr safninu var grisjaðir kynningarbæklingar og mánaðaritið "Heima er bezt" 10, 1985, auglýsinga- og dagskráritið Sjónhornið og kynningarefni þar sem voru tvö eintök. Einnig var fjarlægt allt efni sem tengdist Skagafirði ekki beint. Í sumum tilvikum voru bæklingar og rit merkt skjalamyndara ásamt dagsetningu og ártali. Hefti voru fjarlægð úr einstökum ritum að undanskyldum þykkri ritum sem var leyft að halda sér óbreyttu. Safnið er vel varðveitt.
Úrklippubókin er samanteknar upplýsingar um Danslagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks. Ýmis efni á hljóðböndunum, m.a. upptökur af útvarpsefni ruv og æfing hjá kirkjukór.
Bréfasafn Sigurðar, ásamt nokkrum bréfum til eiginkonu hans og foreldra. Einnig ýmis persónuleg gögn og gögn sem varða opinber störf Sigurðar á Sauðárkróki.
Viðtal við Sigríði Auðuns, læknisfrú á Sauðárkróki. Torfi og Sigríður bjuggu á Sauðárkróki til ársins 1955. Viðtalið líklega tekið í kringum 1950-1970. Sigríður greinir frá uppruna sínum en hún var Vestfirðingur. Greinir einnig frá tengslum sínum við Skagafjörð.
Skipulagsuppdráttur fyrir Sauðárkrókur eftir Guðmund Hannesson frá 1938 og uppdráttur af skipulagi Sauðárkróks eftir Sigurð Sigurðsson (síðar búnaðarmálastjóra) frá 1917. Ljósrit af uppdráttunum sem notaðar voru á sýningarspjöldum, mögulega vegna kynningar á aðalskipulagstillögu frá 1970.
Samningur um Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki á milli Héraðsnefnda V-Húnvetninga, A-Húnvetninga, Skagfirðinga og Siglufjarðarkaupstaðar við Menntamálaráðuneytið.
Samningur um Fjölbrautarskóla á Sauðárkróki á milli Menntamálaráðuneytis annars vegar og Sauðárkrókskaupstaðar, Rípurhrepps, Siglufjarðarkaupstaðar, Blönduóshrepps, Hofsóshrepps, Hólahrepps, Skarðshrepps og Staðarhrepps hins vegar.
Í safninu eru svart hvítar litmyndir - fjölskyldumyndir og myndir teknar á Sauðárkróki og nokkrum öðrum kennileitum í Skagafirði. Tvær skólamyndir frá Húsmæðrakólanum á Löngumýri. Tvær myndir voru innrammaðar, önnur þeirra er máluð ljósmynd af Suðurgötu 18 og lítil mynd af Rósu og foreldrum hennar. Rammar og umslög utan um myndirnar var grisjað úr safninu. Í safninu eru einnig nokkrar handskrifaðar blaðsíður með lista yfir jólagjafir og jólakortasendingar. Í öskjunni er bréf frá Ingibjörgu, dóttur Rósu um afhendinguna til Héraðsskjalasafnsins.
Innbundnar og handskrifaðar bókhaldsbækur. Bækurnar eru allar í góðu ásigkomulagi og hafa varðveist ágætlega. Pappírsgögnin eru vélritaðar skýrslur með efnahagsreikningi U.M.F.T. fyrir árin 1961-1964.
Innbundin og handskrifuð sjóðsbók, bókin er ágætlega varðveitt. Í bókinni voru 4 blaðsíður línustrikaðar með handskrifuðum kynningum á einhverjum karlmönnum sem líklega voru í félaginu. Blöðin eru ódagsett og ómerkt.
Bókin inniheldur lista yfir greiddum aðgangseyri inn á skemmtifundi félagsins auk ársreikninga félagsins einnig bókhaldsfærslur fyrir orgels og húsbyggingarsjóðs U.M.F.T.
Tvær reglugerðir fyrir ekknasjóðs Verkamannafélagsins Fram. Um er að ræða pappírsgögn línu- og rúðustrikuð blaðsíður sem á eru handskrifaðar þessar reglugerðir, eldri reglugerðin er dagsett 23. jan. 1922, hin (og líklega gerð mun seinna) er ódagsett og án ártals. Gögnin hafa varðveist ágætlega og eru vel læsileg.
Uppdráttur teiknaður af Pétri Sighvatssyni af vatnsveitukerfi fyrir Sauðárkrók 1912. Á kortinu má sjá hvernig vatnsveitan var í upphafi lögð í norðurenda bæjarins. Pétur Sighvatsson var skipaður í nefnd um framkvæmd vatnvsveitu á Sauðárkróki og hefur hann því líklega gert uppdráttinn í tengslum við þá vinnu.
Í safninu eru lög, fréttabréf og erindi frá Bandalagi íslenskra Skáta. Bréfasamskipti er varða heimsókn danskra skáta til Sauðárkróks, gjafabréf, formleg bréf og erindi, símskeyti, fundardagskrá og þakkarbréf. Ath. í safninu eru persónugreinanleg gögn, þau eru fremst í örkinni.
Í safninu eru ljósrituð, forprentuð, vélrituð og handskrifuð skjöl. Skjölin eru í góðu ásigkomulagi, sum þeirra eru ódagsett en virðast tengjast sama tímabili og þeirra sem eru dagsett. Í safninu eru söngtextar, starfsáætlanir, upplýsingar fyrir skátalandsmót, afmælisblað og fleira.
Handskrifuð, prentuð og vélrituð pappírsgögn. Í safninu er nokkuð af handskrifuðum blöðum, flest án ártals og dagsetningar. Félagatal, Lög Búnaðarfélags Íslands. Handskrifaðar fundargerðir, einnig nafnalisti og uppröðun félaga í göngur og hirðingu í fjárréttum (án ártals og dagsetn.). Skriflegar og vélritaðar beiðnir um úrsagnir og inntöku nýrra félaga í Búnaðarfélag Sauðárkróks. Safnið er í misgóðu ásigkomulagi en vel læsilegt. Safnið var hreinsað af bréfaklemmum og heftum.
Handskrifuð, vélrituð og prentuð pappírsgögn. Safnið hefur varðveist misjafnlega vel. Umslög með frímerkjum, bókhaldsgögn, fundagerðir frá Búnaðarsambandi Skagfirðinga, prentaðar auglýsingar. Erindi frá Búnaðarþingi, Alþýðusambandi Íslands, Búnaðarsambandi Suðurlands og Stéttarsamband Bænda. Safnið var hreinsað af bréfaklemmum og heftum.
Handskrifuð, vélrituð og prentuð pappírsgögn. Safnið hefur varðveist misjafnlega. Á meðal skjala eru félagatal búnaðarfélagsins, verðskrá fyrir jarðvinnslutæki, bókhaldsgögn, kaupsamningur vegna sölu á jarðvinnslutæki sem var í eigu búnaðarfélagsins. Einnig samningur um leigu á jarðvinnslutæki, erindi frá Búnaðarfélagi Íslands, Áburðarsölu Ríkisins og Sambandi Ísl. Samvinnufélaga. Allar bréfaklemmur og hefti voru fjarlægð af öllum pappír.