Í þessu handriti fjallar Sölvi um ferð sína um Skagafjörð sumarið 1847. Hann nefnir sérstaklega tvo menn sem hann segir vera bændur á Víðivöllum. Samkvæmt Íslendingabók var Jón Ólafsson (1820-1886)¬ bóndi þar um þetta leyti en Ingjaldur nokkur Þorsteinsson (1808-1867) var bóndi á nokkrum bæjum um ævina, t.d. á Ríp (1845) og Eyhildarholti (1850) í Rípursókn. Það er því nokkuð líklegt að Sölvi eigi við þann mann þó ekki virðist hann hafa búið á Víðivöllum. Sölvi sakar þessa menn um að stofna sér í lífshættu, því þeir vildu ekki lána honum hest til að ferja sig yfir Héraðsvötn. Vegna þess að hann hafði meðferðis mörg hundruð málverk og ritverk átti hann í erfiðleikum með að synda yfir Vötnin en það kveðst Sölvi alla jafna ekki vera í vandræðum með. Hann brá því á það ráð að vaða yfir og verja listaverk sín með því að halda þeim yfir höfði sér. Vötnin virðast hafa verið óvenju vatnsmikil og straumþung því Sölvi segir sig hafa verið hætt kominn og lá við fótbroti vegna grjóts sem áin bar með sér. Sölvi þakkar Guði fyrir að hafa komist lifandi yfir en vandar þeim bændum á Víðivöllum ekki kveðjurnar.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það varðar kláfferju á Héraðsvötnum. Aftan við eru ritaðar athugasemdir samgöngumálanefndar. Með liggja tveir minnismiðar. Ástand skjalanna er gott.
Útboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur samhljóða afrit, ásamt fjórum pappírsörkum í A4 stærð sem innihalda tilboð. Varðar grjótflutning vegna Vesturósbrúar. Ástand skjalsins er gott.
Tveir menn að veiðum í Vesturós Héraðsvatna. Maðurinn t.h. er Kristján Guðmundsson skrifstofumaður hjá KS, hinn óþekktur (dettur í hug Adolf Björnsson ca. 1955-1960).
Hefti í stærðinni 25 x 15,5 cm. Hefti til heiðurs afmælisbarni. Í heftinu eru vísur á dönsku. Auk þess ljósmyndir og teikningar. Ritið er 12 bls, auk kápu. Í minnismiða sem fylgir, með rithönd Hjalta Pálssonar, stendur: "Ingvard Sörense apótekari á Sauðárkróki. Myndir úr laxveiði eru úr Héraðsvatnaósi."
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A3 broti, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar um styrk til að koma upp ferjumannsskýli við vestari ós Héraðsvatna.
Tvær handskrifaðar pappírsarkir í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar Héraðsvatnabrú. Lítill bútur hefur rifnað úr skjalinu og á því eru lítils háttar rakaskemmdir.