Viðtöl við Stefán Stefánsson sem ýmist er kenndur við Brenniborg eða Brúnastaði. Stefán er 97 ára þegar viðtalið er tekið. Stefán fæddist á Löngumýri og ólst upp á Skíðastöðum., fór í fóstur á nokkra staði eftir að hafa misst föður sinn 12 ára og eftir það suður til sjós. Lærði söðlasmíði á Fjalli og gekk í Flensborgarskólann. Stefán bjó 20 ár á Blönduósi og var einnig bóndi á Brenniborg. Rætt um kenningar kristninnar og líf eftir dauðann. Einnig rætt um ýmsa samferðamenn Stefáns. Að lokum segir Stefán frá dulrænu atviki er hann var við smíðar og kaupavinnu á Sjávarborg.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar grun um fjárkláða á Skíðastöðum. Með liggur bréfmiði þar sem vottað er að fjárkláði hafi fundist á bænum. Undirritað af Guðvarði Magnússyni. Ástand skjalanna er gott.