Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Jóhannesi Erni Jónssyni í Árnesi. Meðfylgjandi er umslag stílað á Valdemar Guðmundsson, þá búsettan í Fremri-Kotum.
Efri röð frá vinstri: Gísli Guðmundsson bóndi Bjarnastaðahlíð. Sigurður Egilsson frá Sveinsstöðum. Stefán Erlendsson frá Gilhaga. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Þ. Guðmundsson, frá Árnesi, bóndi Laugarholti o.v. Kona hans Helga S. Erlendsdóttir.
Gögnin lýsa því starfi sem fram fór í félaginu, aðalfunda - reikninga - og skýrslubækur, bókaskrár, reikningar og útlán safnsins. Gögnin eru heilleg en hafa verið hreinsuð af bréfaklemmum, heftum, umslögum og auka afritum. Pappírsgögnin eru látin halda sér í þeirri röð eins og þau lágu í upphafi.