Í safni þessu eru fjölmörg sendibréf og meðfylgjandi umslög er bárust til Sigurbjargar og Magnúsar bróður hennar á þessu tímabili. Einnig eru sendibréf til Walters sem var í sveit hjá þeim Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi. Í safni þessu liggja líka jólakort og myndir myndir og eru látnar halda sér hjá því sendibréfi vegna uppruna. Í series bókhaldi E, lá efst í safninu er óopnað umslag frá Kaupfélagi Skagfirðinga merkt Stefánía M Pétursdóttir, Garði Hegranesi, það er látið halda sér þannig. Í series G-4 er handskrifað bréf með stimpilmerki. Bréfið sýnist vera skírnavottorð um skírn Jón fæddur 9.janúar, skírður 2.des.ár 1916. Foreldrar, Björn Pálmason og Sigurbjörg Jónsdóttir.Ytri - Húsabakka. Dagsett, Glaumbæ 3.maí 1930.
Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Um er að ræða erfiljóð um frú Önnu Sigurjónsdóttur (1926-1958) kennara í Hróarsdal, sem ber yfirskriftina "Kveðja frá eiginmanni og börnum." Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar ósk um að kaupa þjóðjörðina Hróarsdal í Hegranesi. Með liggur bréf til sýslunefndar, sama efnis. Ástand skjalsins er gott.
Beiðnin er handskrifuð á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar færslu hreppsvegar milli Keldudals og Hróarsdals. Á aðra örkina er ritað samþykki hreppsnefndar. Ástand skjalsins er gott.