Listinn er handskrifaður á sex pappírsarkir í A4 stærð. Yfirskrift hans er "munir fáanlegir í byggðasafnið." Listaðir eru upp munir á ýmsum bæjum í Skagafirði. Ástand skjalsins er gott.
Bjarni Benediktsson (1835-1900) Hamarsgerði í Lýtingsstaðahreppi Skag. seinni kona hans Marín Gísladóttir (1846-1919) og dóttir þeirra Gíslína Bjarnveig Bjarnadóttir (1878-) síðar húsfreyja á Starrastöðum.