Skýrslur um heyskap á Skúfsstöðum frá 1899-1963. Þar kemur fram hversu margir unnu við sláttinn, hvaða dagar var unnið við heyskap og hvernig heyaðist.
Í Laufskálarétt haustið 1955. Maðurinn fyrir miðju er Kolbeinn Kristinsson frá Skriðulandi og maðurinn til hægri Jón Björnsson frá Bakka í Viðvíkursveit. Aðrir óþekktir.
Harðspjaldabók með línustrikuðum blaðsíðum. Í bókina eru færðir reikningar slysavarnadeildarinnar frá 1944-1961, að öðru leyti eru blaðsíður bókarinnar auðar. Bókin er mjög vel með farin, hún er vel læsileg. Á kjöl bókarinnar er límborði.
Forprentaðar yfirlitsskýrslur í A3 stærð með handskrifuðum og vélrituðum upplýsingum um sauðfjárrækt, fyrir tímabilið 1955-1965. Allar skýrslurnar eru vel varðveittar og læsilegar.
Tvö línustrikuð pappírsgögn. Annað skjalið sem er í A5 stærð er n.k. stofnskjal þar sem um 50 manns rita nöfn sín til stofnunar slysavarndadeildar í Hólahreppi. Það er vel læsilegt en er orðið mjög snjáð og skítugt og hefur rifnað. Hitt skjalið er í A3 stærð þar sem er félagaskrá fyrir tímabilið 1952-3 með 41 nafni.
Innbundin og handskrifuð bók, blaðsíðurnar eru línustrikaðar. Bókin er mjög vel með farin og greinilega lítið notuð, aðeins eru færðar í hana lög félagsins og alls sex fundagerðir að öðru leyti eru blaðsíðurnar auðar. Límborði er á kjöl bókarinnar.
Innbundin og handskrifuð bók. Bókin hefur verið lítið notuð og þess vegna varðveist ágætlega, hún er vel læsileg. Í bókina eru skráðar fundagerðir og reikningar félagsins sem spannar tímabilið 1929 - 1967.
Forprentaðar hrútaskýrslur í A3 stærð með handskrifuðum upplýsingum um sauðfjárrækt, fyrir tímabilið 1952-1974. Allar skýrslurnar eru vel varðveittar og læsilegar.
Í safninu eru einugis ein innbundin og handskrifuð bók sem í eru línustrikaðar blaðsíður. Í bókina eru ritaðar fundagerðir og reikningar nautgriparæktunarfélagsins. Bókin er vel varðveitt og læsileg, það er ekki skrifað nema í hluta bókarinnar að öðru leyti eru blaðsíðurnar auðar. Ekki kemur fram hvenær félagið er stofnað né hvort búið sé að leggja það niður.
Hæðalínu kort af Hjaltadal og Kolbeinsdal ( ódagsett). Uppdráttur Íslands 4 kort no: 52 Skagafjörður. 53 Víðimýri. 62 Eyjafjörður. 63 Akureyri. Kortin eru með mikið umfang og eru geymd í uppruna samanbrotin.
Skjölin voru upprúlluð þegar farið var að vinna við að flokka og greina safnið. Í safninu voru nokkur eintök af sama eintakinu, það var grisjað og eitt eintak af hvoru var haldið eftir og reynt að laga til og sett í örk.
Harðspjalda handskrifuð bók sem er í viðkvæmu ástandi, blöðin gulnuð og nokkuð rifin en vel læsileg. Bókin hefur verið sett í nýja kápu og hún er frá stofnfundi félagsins. Gott væri að mynda þessa bók til að halda í heimildir.
Eitt forprentað rúðustrikað blað í A3 stærð. Á blaðið er skrifað; "Meðalþungi reiknaður meðaldilka á fæti. Kjötþungi" og eru þessar upplýsingar gerðar fyrir tímabilið 1954-1959 fyrir Sauðfjárrætkarfélag Hólahrepps. Á blaðið er einnig teiknaðar og litaðar súlur með tölulegum upplýsingum eins og fjölda félagsmanna sem skila skýrslunum, þungi áa í október, meðalþyngdarauki yfir veturinn og fleiri atriði. Blaðið er vel varðveitt og læsilegt
Engin gögn eru í safninu sem segja til um stofnun eða starfsemi Sauðfjárræktarfélag Hólahrepps, Í safninu eru forprentaðar skýrslur í A3 stærð með handskrifuðum upplýsingum um sauðfjárrækt í Hólahreppi á tímabilinu 1950-1974. Þetta eru sauðfjárræktarskýrslur, yfirlitsskýrslur og hrútaskýrslur. Safnið var allt flokkað eftir ártali og skýrslurnar voru í broti sem var látið halda sér. Öll gögn eru í góðu ásigkomulagi og eru vel læsileg.