Blaðið er í A4 broti og er 112 síður, auk kápu. Undirtitill þess er "Ræður og kvæði eftir J. Krishnamurti." 1. árgangur. Gefinn út af Stjörnufjelaginu.
"Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki hóf útgáfu handskrifaðs blaðs er nefndist Árgeislinn árið 1907. Blaðið varð þegar í upphafi vettvangur deilna milli félagsmanna þar sem tókust á sjónarmið íhaldsstefnu og frjálslyndis á ýmsum sviðum. Einkum voru átökin um bindindisheit félagsmanna og um hvort félagið ætti að hafa kristileg gildi í hávegum. Helstu baráttumenn hvors hóps voru annars vegar Jón Þ. Björnsson og Brynleifur Tobíasson kennari, sem fulltrúar kristinna gilda og bindindis, og hins vegar Jón Pálmi Jónsson ljósmyndari og Árni Daníelsson kaupmaður."
Bréfið er vélritað á bréfsefni Ísafoldar, pappírsörk í A4 stærð. Það varðar störf Valdemars við innheimtu fyrir blaðið Ísafold.Bréfinu fylgir vélritaður nafnalisti yfir áskrifendur í Akrahreppi og umslag merkt Ísafold, stílað á Valdemar.
Heiðarbúinn - Blað vegavinnu- og varðmanna var gefið út af Kristmundi Bjarnasyni og Steingrími Bernharðssyni. Í inngangsorðum segir að blaðið sé gefið út á Öxnadalsheiði þar sem útgefendur unnu við vegavinnu. Tekið er fram að bréf til Heiðarbúans sé best að senda með langferðabifreiðum B. S. A. eða Steindórs en þær bifreiðar stöldruðu við daglega.
Grein send Einherja 1969 eftir Martein Friðriksson sem sat þá í meirihluta bæjarstjórnar á Sauðárkróki fyrir Framsóknarflokkinn. Greinin ber yfirskriftina "Norðanfara svarað" og er svar við grein Sjálfstæðismanna á Sauðárkróki sem þá voru í minnihluta. Marteinn kemur víða við í grein sinni og fer meðal annars yfir Fjárhagsáætlun 1968 og rekstrarniðurstöðu þess árs.
"Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki hóf útgáfu handskrifaðs blaðs er nefndist Árgeislinn árið 1907. Blaðið varð þegar í upphafi vettvangur deilna milli félagsmanna þar sem tókust á sjónarmið íhaldsstefnu og frjálslyndis á ýmsum sviðum. Einkum voru átökin um bindindisheit félagsmanna og um hvort félagið ætti að hafa kristileg gildi í hávegum. Helstu baráttumenn hvors hóps voru annars vegar Jón Þ. Björnsson og Brynleifur Tobíasson kennari, sem fulltrúar kristinna gilda og bindindis, og hins vegar Jón Pálmi Jónsson ljósmyndari og Árni Daníelsson kaupmaður."
Blaðið er 28 prentaðar síður í A4 broti, að kápu meðtalinni. Blaðið er gefið út af skólastjórafélagi Íslands og er þetta 2.tbl, 11.árg, gefið út í ágúst 1966.
Sveitablaðið Viljinn sem Lestrarfélagið í Miklabæjarsókn gaf út. Ritstjóri: Jón Eiríksson. Meðritstjórar: Séra Lárus Arnórsson og Agnar Baldvinsson. Inniheldur ljóð, hugleiðingar og aðsent bréf.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Ekki er ljóst hvort vantar framan á bréfið eða hvort ávarpi og slíku og sleppt í drögunum. Bréfið varðar störf Valdemars við innheimtu fyrir Ísafold.