Vorið 1995 var ráðist í það að bæta lendingu í Málmey. Það voru félagar í Ungmennafélaginu Neista á Hofsósi sem tóku verkið að sér. Á myndinni eru Páll Brynjarsson og Halldór Kjartansson með stein á milli sín í þar til gerðu burðarneti.
Tilg. Ársþing SSNV í Miðgarði. F.v. Jón Karlsson, Elín R. Líndal, Björn Sigurbjörnsson, Lárus B. Jónsson, Páll Pétursson alþingismaður, Baldur Valgeirsson og Guðmundur Örn Ingólfsson.
Sjúkrahús Skagfirðinga 90 ára 1996. Frá hátíðarfundi í samkomusal dvalarheimilins í lok nóv, 1996. Í fremstu sætaröð f.v. Herdís Klausen yfirhjúkrunarfræðingur, Elín Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Ólafur Ingimarsson læknir, Örn Ragnarsson læknir og Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri sjúkrahússins.
Atvinnumálaráðstefna í Miðgarði í janúar 1997. SSNV, Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra og fjármálaráðuneytið stóðu fyrir ráðstefnunni. Við borðið næst. Magnús Sigurjónsson og Ingibjörg Hafstað og við borðið fjær Zophonías Zophoníasson (t.v.) og Lárus B. Jónsson.
Tilg. Frá bæjarskrifstofunni á Króknum. Næsr t.v. Elsa Jónsdóttir og Matthías Viktorsson bak við hana. Sennilega Inga Adreassen lengst t.h. og Engilráð Sigurðardóttir önnur f.h. Maðurinn í horninu óþekktur.
Ítölunefnd fyrir Eyvindasta- og Auðkúluheiði kynnir niðurstöður nefndarinnar á fundi í Varmahlíð vorið 1985, en talið er að heiðarnar þoli ekki það beitarálag sem á þeim hefur verið. Á myndinni eru f.v. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Andrés Arnalds frá Landgræðslunni, Jóhann Guðmundsson, Stapa, Sigurpáll Árnason, Lundi og Ólafur Dýdmundsson, landnýtingarráðunautur í ræðustóli.
Fyrirtækið RKS Skynjaratækni á Sauðárkróki kynnir nýtt tæki til kennslu í eðlis- og náttúrufræði í desember 1996. Á myndinni eru f.v. Sigurður A. Einarsson eðlisverkfræðingur, Rögnvaldur Guðmundsson framkvæmdastjóri RKS Skynjaratækni, Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Ásdís Halla Bragadóttir aðstoðarmaður ráðherra og Jón F. Hjartarson skólameistari FNV.
Anna Kristín Gunnarsdóttir formaður Ræðuklúbbs Sauðárkróks afhendir Guðmundi Gunnarsyni bókina, Ráð við þögninni, ásamt blómum á fundi Ræðuklúbbsins í desember 1997, en Guðmundur hafði fundið handrit af gömlum fundagerðum klúbbsins.
Árni Guðmundsson talar á fundi Ræðuklúbbs Sauðárkróks í desember 1997. Umræðuefnið var mannskaðaveðrið á Skagafirði í desember 1935 en í því fórust áhafnir tveggja báta og einn maður varð úti, alls 8 menn. T.v. við Árna eru Magnús Jónsson veðurfræðingur og Anna Kristín Gunnarsdóttir formaður klúbbsins.
Pálmi Jónsson talar á fundi Ræðuklúbbs Sauðárkróks í desember 1997. Rætt var um mannskaðaveðrið á Skagafiði í desember 1935, en þá fórust áhafnir tveggja báta og einn maður var úti, alls 8 menn. T.v. við Pálma eru Magnús Jónsson veðurfræðingur og Anna Kristín Gunnarsdóttir formaður klúbbsins.
Magnús Jónsson veðurfræðingur ræðir um mannskaðaveðrið á Skagafirði í desember 1935, á fundi Ræðuklúbbs Sauðárkróks í desember 1997. Skipshafnir tveggja báta fórust og einn maður varð úti, alls 8 menn.
Friðrik Jónsson talar fundi Ræðuklúbbs Sauðárkróks í desember 1997. Umræðuefnið var mannskaðaveðrið á Skagafirði í desember 1935, en þá fórust áhafnir tveggja báta og einn maður varð úti, alls 8 menn. T.v. við Friðrik eru Magnús Jónsson veðurfræðingur og Anna Kristín Gunnarsdóttir formaður klúbbsins.
Aðalfundur Sauðárkróksdeildar KS vorið 1985. Marteinn Friðriksson framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar við ræðupúltið og t. h. við hann Ólafur Friðriksson kaupfélagsstjóri og Firðrik Sigurðsson (sennilega deildarstjóri Sauðárkróksdeildar).
Fjórir hagirðingar á skemmtun í Húnaveri í janúar 1997. F.v. Reynir Hjartarson frá Brávöllum, Óskar Sigurfinnsson frá Meðalheimi og Akueyrarlæknarnir, Hjálmar Freysteinsson og Pétur Pétursson.
Fjórir hagirðingar á skemmtun í Húnaveri í janúar 1997. F.v. Reynir Hjartarson frá Brávöllum, Óskar Sigurfinnsson frá Meðalheimi og Akureyrarlæknarnir Óskar Sigurfinnsson og Pétur Pétursson.
Frá undirritun samnings milli frjálsíþróttadeildar Tindastóls og Jóns Arnar Magnússonar tugþrautakappa í janúar 1997, þar sem Jóni og þjálfara hans Gísla Sigurðssyni eru tryggð föst laun svo og ferða og dvalarkostnaðar peningar fram yfir Ólympíuleikana í Sydney árið 2000. F.v. Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Viggó Jónsson form. frjálsíþróttadeindar Tindastóls, Jón Arnar Magnússon, Ellert B. Schram forseti ÍSÍ og Jón Egilsson varaform. FRÍ.
Í febrúar 1997 stóð æaskulíðs- og íþróttaráð Sauðárkróks fyrir boði þar sem íþróttafólk úr 4 íþróttafélugum í bænum þ.e. Tindastóli, Þrym, Grósku og Golfklúbbi Sauðárkróks voru veittar viðurkenningar, jafnframt útnefndi Páll Ragnarsson form. Tindastóls Jón Arnar Magnússon tugþrautakappa íþróttamann ársins. Á myndinni eru f.v. Sigurður Karlsson, Andri Árnason, Birgir Óli Sigmundsson, Björgvin Eiðsson, Garðar Gunnarsson og Andri Árnason og aftan við er svo Hrafnkell Ingólfsson.
Í febrúar 1997 hélt æskulýðs- og íþróttaráð Sauðárkrós boð fyrir íþróttafólk úr 4 íþróttafélugum þ.e. Tindastóli, Þrym, Grósku og Golfklúbbi Sauðárkróks,þar sem þeim voru veittar viðurkenningar, jafnframt tilnefndi Páll Ragnarsson form. Tindastóls Jón Arnar Magnússon tugþrautakappa, íþróttamann ársins. Á myndinni eru f.v. Sigurður Karlsson, Hrafnkell Ingólfsson, Birgir Óli Sigmundsson, Garðar Gunnarsson og Andri Árnason og framan við Björgvin Eiðsson (t.v.) og Arnar Björnsson.
Í febrúar 1997 hélt æskulýðs- og íþróttaráð Sauðárkróks boð fyrir félaga úr 4 íþróttafélugum þ.e. Tindastóli, Þrym , Grósku og Golfklúbbi Sauðárkróks, þar sem veittar voru viðurkenningar, jafnfram var Jón Arnar Magnússon útnefndur íþróttamaður ársins. Á myndinni eru f.v. Gísli Sigurðsson frjálsíþróttaþjálfari, Björgvin Eiðsson, Birgir Óli Sigmundsson, Hrafnkell Ingólfsson, Andri Árnason, Arnar Björnsson, Garðar Gunnarsson og Sigurður Karlsson.
Úr leikritinu, Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo, sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp í Bifröst síðla vetrar 1993 . Ásgrímur Ingi Arngrímsson t.h. hinn óþekktur.
Kiwanisklúbburinn Drangey gað 7 ára krökkum á Króknum reiðhjólahjálma. Hugsanlega er þarna verið að afhenda hjálma við lögreglustöðina. Sveinbjörn Ragnarsson lögreglumaður t.v. og Hallur Sigurðsson kiwanismaður t.h.
Frá afhendingu reiðhjólahjálma við lögreglustöðina á Sauðárkróki, en Kiwanisklúbburinn Drangey gaf 7 ára krökkum á Króknum reiðhjólahjálma. Sveinbjörn Ragnarsson lögregluþjónn t.v. og Hallur Sigurðsson kiwanismaður t.h. (krýpur).
Sæmundur Hermannsson (t.h.) formaður Bygginganefndar öldrunarheimila afhendir Halldóri Þ. Jónssyni sýslumanni lykla að 6 nýjum íbúðum fyrir aldraða á Hofsósi í maí 1986.