Á hlaðinu í Bjarnastaðahlíð í Skagafirði. F.v. Sveinn Guðmundsson (1905-1950) bóndi - Helga Erlendsdóttir með Ingibjörgu Sveinsdóttur á handlegg. Guðmundur Sveinsson bóndi - Ingibjörg Friðfinnsdóttir húsfreyja og Erlendur Helgason (1884-1964) bóndi á Ánastöðum í Svartárdal.
Guðmundur Guðmundsson bókhaldari og verslunarmaður á Eyrarbakka, og kona hans Snjólaug Jakobína Sveinsdóttir frá Bjarnastaðahlíð, og Hans Ástmundur sonur þeirra. Myndin er send sem jólakveðja til Guðrúnar systur Snjólaugar.
Helga Erlendsdóttir húsfr. Bjarnastaðahlíð Skag. með dóttur sína Ingibjörgu Sveinsdóttir (f. 1936) - síðar húsfreyju í Eyhildarholti. Helga situr á kirkjubekk úr Ábæjarkirkju í Austurdal.
Efri röð frá vinstri: Gísli Guðmundsson bóndi Bjarnastaðahlíð. Sigurður Egilsson frá Sveinsstöðum. Stefán Erlendsson frá Gilhaga. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Þ. Guðmundsson, frá Árnesi, bóndi Laugarholti o.v. Kona hans Helga S. Erlendsdóttir.
Þorbjörg Ólafsdóttir (1906-1993) frá Starrastöðum Skag. við hest sinn í Bjarnastaðahlíð. Þorbjörg bjó lengi á Mælifellsá með manni sínum Birni Hjálmarssyni (f. 1903)