Sögumaður fjallar áfram um þessa ferð Sölva þar sem hann selur og afhendir gripi fyrir höfðingjana, hann víkur að guðdóminum og skilningi Sölva á honum eins og kemur fram í tilvitnunni hér að neðan en Sölvi muni síðar birta alla sína speki í Sjö þúsund þúsunda auka bók sinni.
„… hans og speki, og þekkingu hans á öflunum, lífsins, ljósins, náttúrunnar og andaheimsins“
Efst á seinni síðu opnu:
„Þér undrist ekki á því heiðvirðu lesarar mínir! Þótt ég viti sannleikann um mig í bókunum mínum, yfir gáfur þær er Alfaðir gaf og gefur Sölva“
Þessi byrjun á seinni síðu opnunnar er athyglisverð, hér ávarpar sögumaðurinn lesandann og gefur um leið upplýsingar um sjálfan sig og um leið hægt að skilja það svo að sögumaður og Sölvi séu einn og sami maðurinn.
Frásögnin af Sölva sem er gæddur gjöfum Alföðursins heldur áfram, í bókum hans má lesa um sannleikann enda er hann á drottins vegum, sannleikans og dyggðarinnar gegn lyginni og syndinni.