Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 14,7 cm. Hún inniheldur uppskrift af sögn af Myllu-Kobba, eftir Jón Jónatansson, sem skrifuð er upp úr Lesbók Morgunblaðsins 9. júlí 1944. Kápan er laus frá og helming hennar vantar.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 14,8 cm. Bókin inniheldur frásögn af Myllu-Kobba, alls 35 síður, ritaða af Pétri. Hún tengist útgáfu bókarinnar Tvennir tímar. Kápuna vantar á bókina.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar ritun æviþátta fyrir Skagfirskar æviskrár. Einnig kemur fram að Eiríkur endursendir Pétri æviþátt um Myllu-Kobba, sem ekki verði birtur að sinni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar ætt Vatnsfjarðar-Kristínar. Með liggja tvær pappírsarkir í A5 stærð sem varða ættina, sem og umslag. Ástand skjalanna er gott.