Sýningarskráin er fjölrituð á pappírsörk í stærðinni A3. Skráin er frá sýningu á verkum skagfirskra málara í Safnahúsinu á Sauðárkróki árið 1971. Formála að sýningarskrá ritar Indriði G. Þorsteinsson. Ástand skjalsins er gott.
Viðtal við Stefán Rósantsson frá Gilhaga, líklega tekið 1969. Virðist vanta framan á viðtalið. Það er í tvennu lagi og í stafrænu afriti er það klippt saman. Rætt um ýmsa samtíðarmenn Stefáns, m.a. Símon Dalaskáld. Einnig talar Indriði G. Þorsteinsson í þessari upptöku.