Skjalið er tölvuprentað og inniheldur nafnalista ásamt spakmælum og ljóðlínum, sem og skýringum. Einnig eru á blaðinu myndir af þeim sem um ræðir. Meðfylgjandi er handskrifað blað með sömu vísum og spakmælum.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar stofnun félags í Skagafirði. Með liggur félagaskrá Hjarta- og æðasjúkómavarnarfélags Skagfirðinga 1964, sem er einnig vélritaður á pappírsörk í A4 stærð. Einnig liggja með lög Hjartaverndar. Þau eru vélrituð á 4 bls. í folio stærð. Bréfið er stílað á Ólaf Sveinsson sjúkrahúslækni á Sauðárkróki, en á félagatalinu kemur fram að Kristján C. Magnússon var félagsmaður í umræddu félagi.
Kirkjukór Sauðárkróks, sennilega á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Fremst eru Guðrún Eyþórsdóttir t.v. við orgelið þá Guðmann Tóbíasson og t.h. Ólafur Sveinsson læknir og sr. Hjálmar Jónsson.