Sýnir 1797 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Mannamyndir* With digital objects
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Mynd 114

Sigurður Pétursson frá Sjávarborg.
Aftan á myndina er skrifað: "Sigurður Pétursson sýslumaður frá Sjávarborg dó ungur."
Myndin var gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur Skr.

Mynd 115

Fjögur óþekkt börn.
Aftan á myndina er skrifað:
"Kalli bróðir minn."
Gefandi er Magnús Gíslason frá Frostastöðum, 20.05.1997.

Mynd 126

Þorbjörg Þorvaldsdóttir og fjölskylda hennar.
Þorbjörg var dóttir Þorvaldar Einarssonar og Láru Sigfúsdóttur á Sauðárkróki.
Aftan á myndina er ritað:
"Pjettur bróðir. Jeg sendi þjer mind af okkur en vonast til að fá mind af ykkur ef þið gjettið. Þín systir Þorbjörg."

Mynd 128

Árni Kristinsson, 12 ára gamall. (F. 30.04.1883).
Líklega fyrsta mynd sem til er af honum.
Tekin í Winnipeg, Manitoba, Kanada árið 1895.

Mynd 133

Árni Kristinsson les jólasögu fyrir tvö af barnabörnum sínum, Patti og Steve Thompson. Myndin er tekin 24. desember 1959 í Saskaton.

Mynd 39

Þrjár óþekktar konur.
Aftan á myndina er skrifað:
"Þetta erum við þrjár sistur Lauga til vinstri, jeg í miðið og Björg til hægri."

Mynd 61

Samkvæmt upplýsingum á myndinni er maðurinn á myndinni annað hvort Sigurbjörn Bjarnason eða Guðmundur Bjarnason, bróðir Bjargar Bjarnadóttur í Borgargerði, en þeir fóru báðir til Vesturheims. Myndin var send Björgu Bjarnadóttur í Borgargerði.

Mynd 63

Börnin á myndinni eru óþekkt.
Myndin er merkt Sigríði Magnúsdóttur á Hofsósi og virðist hún því hafa fengið hana senda.

Mynd 97

Fólkið á myndinni er óþekkt.
Aftan á myndina er skrifað:
"Þetta er Silvía dóttir Gunnlýgs bróðir míns og heit bróðir hennar."

Mynd 101

Aftan á myndina er skrifað:
Antoniette og Eurico og ég. Þetta er sama sunnudaginn. Hjónin heita Carmine og Antoniette Mezzacappa og drengirnir eru Eurico. Mig þekkið þið býst ég við."
Myndin er merkt með sömu rithönd og mynd nr 98.

Mynd 108

Konan hægra megin á myndinni er Sigurlína, sem var hjá Pálma Péturssyni og Helgu og Sjávarborg en fór til Vesturheims.
Hin konan er óþekkt.

Mynd 142

Fimm óþekkt börn sem sitja við húsvegg ásamt hundi. Í glugganum sést óþekkt kona. Einn strákurinn heldur á ketti.

Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)

Mynd 174

Jón Norðmann Jónasson annar frá vinstri, Sigurður Þórólfsson lengst til hægri, aðrir óþekktir. Foss í baksýn.

Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)

Mynd 176

Fólk á ferðalagi. Lengst til vinstri er Jón Norðmann Jónasson og lengst til hægri Sigurður Þórólfsson. Aðrir óþekktir.
Sama fólk og á mynd nr 174 og 175.

Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)

Mynd 186

Tveir óþekktir drengir á Farmall dráttarvél.
Myndin er líklega tekin á Selnesi og Drangey í baksýn.

Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)

Mynd 211

Hópur barna ásamt nokkrum fullorðnum. Myndin er talin tekin á skólaferðalagi með börn af Skaganum, en Jón fór reglulega slíkar ferðir með nemendur sína.
Talið frá vinstri: Anna Jónína Jónsdóttir Hóli, Hólmfríður Ingibjörg Jónsdóttir Hóli, Jóhanna Sveinsdóttir Hafragili (í hvítri skyrtu, konan bak við hana ónafngreind), óþekktur maður (sá hávaxni dökkhærði), Ásta Egilsdóttir (í hvítri skyrstu og úlpu), Örn Þorleifsson, bílstjóri í ferðinni (með kaskeyti), sú sem ber við öxlina á honum er Bentína Jónsdóttir Hvalnesi, Sigrún Lárusdóttir Efra-Nesi (með gleraugu, horfir til hliðar), strákurinn næst henni er ónafngreindur, Kristín Sveinsdóttir Hafragili (horfir til Sigrúnar), Jón Björn Þórarinsson Fossi fyrir framan hana, Vilhjálmur Egilsson fyrir framan Jón Björn, Eiðný Ólafsdóttir Gauksstöðum, Þorsteinn Steingrímsson á Selá (sköllóttur), strákurinn fyrir framan hann ónafngreindur, Steinn Ástvaldsson, hugsanlega Björgvin Sveinsson hægra megin bak við hann, Guðmundur á Sævaralandi (með kaskeyti), Baldvin Jónsson Hóli við hlið hans (með bindi), þá Hreinn á Selá (í skyrtu með bindi, sposkur á svip), Lárus Björnsson (með pottlok), bakvið hann er Tómas Ástvaldsson og lengst til hægri Björn Ástvaldsson. Fremt til hægri (með myndavél um hálsinn) er Ásmundur Hrólfsson úr Reykjavík.

Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)

Mynd 230

Hópur skólabarna á ferðalagi, ásamt nokkrum fullorðnum. Lengst til hægri með húfu og bindi er Jón Norðmann Jónasson.
Tilgáta: Skólaferðalag.

Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)

Mynd 2

Ólöf Ingibjörg Björnsdóttir, Gunnarssonar, f. 1921 og amma hennar Ingibjörg Ólafsdóttir í Syðra-Vallholti, f. 1857. Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 3

Hjónin á Syðri-Húsabakka, (Emelía) Kristín Sigurðardóttir, f. 1880 á Marbæli á Langholti, d. 1971 og Jón (Kristinn) Jónsson, f.1888 á Völlum í Hólmi, d. 1966. Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 7

Vegamenn 1928, flokkur Kristjáns Hansen. Við vegagerð hjá Grófargili eða Húsey. Aftast f.v. Jón Helgason, Geldingaholti, Haraldur Albertsson, Siglufirði, Flóvent, Gissur Jónsson, Valadal, Grímur á Seylu. Miðröð f.v. Jónas Gunnarsson, Hátúni, Markús Sigurjónsson, Reykjarhóli, Kristján Hansen, Björn Gíslason, Hjalti Jónsson, Valadal. Fremst f.v. Vigfús Sigurjónsson, Reykjarhóli, Steingrímur Friðriksson, Steinþór Skörðugili.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 17

Helga Sölvadóttir, f. 1859 á Kleif á Skaga, d. 1942 á Uppsölum.
Móðir Ingibjargar Sigurðardóttur á Stóru-Ökrum og Bjarna Halldórssonar á Uppsölum. Hér er Helga með tvo sonarsyni sína, Halldór Bjarnason stendur hjá henni og Jónas Bjarnason í fangi ömmu sinnar.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 26

Í malarkrús hjá Húseyjarkvísl, sunnan við Kvíslarbrúna sumarið 1928. Vegamenn losa efni í krúsinni og moka á hestakerru við vegagerðina. Fjærst eru Hjalti Jónsson og Flóvent Albertsson með derhúfu. Í miðröð eru Garðar Hansen, Jón Helgason og Pótur Eiríksson með hattinn. Næstur á myndinni er Steingrímur Skagfjörð..

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 31

Myndin er tekin á Miklabæ í Blönduhlíð 1928. Efsta röð f.v. Drengurinn, Guðmundur Jóhann Ólafsson, móðir hans Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Miklabæ, Fanney Guðmundsdóttir, Jóhannes Guðmundur Guðmundsson, Víkurkoti, síðar á Hellu. Jón Kristjánsson. Miðröð, Guðrún Björnsdóttir, Miklabæ, Ingibjörg Jóhannsdóttir, veitingakona í Varmahlíð, Sigurlaug Jónasdóttir, Uppsölum, Sigþrúður Konráðsdóttir, kona Jóhannesar G. Ekki alveg ljóst með nöfn barnanna í fremstu röð.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 36

Börn Sigurlaugar og Bjarna á Uppsölum. F. v. Kristín, Halldór, Jónas. Egill fremstur.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 39

Talið að þetta séu Brynjólfur Sveinsson, menntaskólakennari á Akureyri og frú.

Egill Jónasson (1901-1932)

Niðurstöður 341 to 425 of 1797