- IS HSk N00028-D-A-BS247
- Item
- 1935
Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn
- Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði - en þangað fór Bruno með meðmælabréf prestsins á meðan Matthías skoðaði leiði Bjarna Thorarensen. Myndin er tekin á bæjarhúsunum til suðvesturs í átt að fjárhúsunum - en þar er húsmóðirin - Jenný Ásgeirsdóttir - ásamt heimalingnum. Í fjarlægð sjást fjárhúsin á Möðruvöllum (frá vinstri: Fjárhús - miðhús og Lækjarbakkahús). Ábúendur 1935 voru Ferdinand Kristjánsson frá Meyjarhóli á Svalbarðsströnd (1892-1971) og Jenný Ásgeirsdóttir frá Gautsstöðum (1898-1995). Dóttir þeirra er Ásta Ferdinandsdóttir (f. 1928) Spónsgerði.
Bruno Scweizer (1897-1958)