Showing 60283 results

Archival descriptions
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

35618 results with digital objects Show results with digital objects

Sagan af Julien og Fleurie

Hér er saga eða ævintýri af systkinunum Júlíen og Fleurie. Þau eru af aðalsættum og búa við allsnægtir. Júlíen, ólíkt systir sinni, kemur illa fram við flækinga sem leita ásjár hjá fjölskyldunni. Þegar hann hefur í tvígang hafnað fólki sem þarf á hjálp að halda leggur maður í röðum mötli á hann álög sem setja hann í spor allslaus flækings. Hann er fluttur út í skóg ásamt systur sinni sem vildi af góðmennsku sinni fylgja honum. Þar eru þau skilin eftir og þurfa að bjarga sér sjálf og reiða sig á góðmennsku þeirra sem á vegi þeirra verða.
Sagan gerist í Bordeaux í Frakklandi í kringum 1820 – 30 en óvist er um uppruna hennar. Enginn titill er á sögunni en Sölvi setur nafn sitt undir undir hana. Það gerir hann ekki við riddarasöguna af Flóres og Blankiflúr, hvort það bendi til þess að Sölvi hafi sjálfur samið söguna skal ósagt látið en líklegra er að um endursögn á einhverju ævintýri sé að ræða.

Skjal 2, framhlið

Á þessum síðum má sjá sögu af djöflinum og hans framgöngu á Íslandi. Þema sem kemur nokkuð oft fyrir í handritum Sölva. Þá er því lýst hvernig djöfullinn fer um og safnar saman fólki sem hann á sálina í og leikur það oft grátt með ýmsum gróteskum hætti. Oft virðist vera um að ræða hefðbundna frásögn þar sem lýst er samskiptum Sölva við helstu fjandmenn sína, þar sem þeir eru nafngreindir en síðan fer frásögnin út í fantasíu sem stundum virðist tengd við drauma Sölva. Í þessari sögu eru nafngreindir menn sem sannarlega voru uppi og reyndust Sölva ekki sértaklega vel ef marka má þessa frásögn. Jóhannes nokkur frá Laxamýri og synir hans þeir jón og Kristján fá allir slæman vitnisburð frá Sölva. Hóp presta telur hann upp og segir þá alla vera á vegum andskotans en ekki drottins. Þetta voru þeir Björn Þorsteinsson (1805-1874) prestur á Stafafelli í Lóni. Bjarni Sveinsson á Múla í Skriðdal. Páll Magnússon (1801-1860) prestur í Sandfelli í Öræfum.

Skjal 2, opna

Hér eru ýmsir kynntir til sögunar sem fylgismenn og fornarlömb djöfulsins, til dæmis Allt heimilsfólkið á Ketilsstöðum á Völlum 1853, allt heimilisfólkið á Valþjófsstað, allt heimilisfólkið á Hofi í Eyjarfirði, allt heimilisfólkið og allt heimilisfólkið á Sauðanesi á Langanesi

Skjal 1, opna 3

Sögumaður fjallar áfram um þessa ferð Sölva þar sem hann selur og afhendir gripi fyrir höfðingjana, hann víkur að guðdóminum og skilningi Sölva á honum eins og kemur fram í tilvitnunni hér að neðan en Sölvi muni síðar birta alla sína speki í Sjö þúsund þúsunda auka bók sinni.
„… hans og speki, og þekkingu hans á öflunum, lífsins, ljósins, náttúrunnar og andaheimsins“

Efst á seinni síðu opnu:
„Þér undrist ekki á því heiðvirðu lesarar mínir! Þótt ég viti sannleikann um mig í bókunum mínum, yfir gáfur þær er Alfaðir gaf og gefur Sölva“
Þessi byrjun á seinni síðu opnunnar er athyglisverð, hér ávarpar sögumaðurinn lesandann og gefur um leið upplýsingar um sjálfan sig og um leið hægt að skilja það svo að sögumaður og Sölvi séu einn og sami maðurinn.
Frásögnin af Sölva sem er gæddur gjöfum Alföðursins heldur áfram, í bókum hans má lesa um sannleikann enda er hann á drottins vegum, sannleikans og dyggðarinnar gegn lyginni og syndinni.

Síða 3, opna

Áfram heldur kennslustundin i deilingu en neðst á seinni síðu opnu eru einhvers konar talnatöflur.

Síða 3, bakhlið

Hér er allt í einu farið að fjalla um hvernig fólk eigi ekki skilið að komast í ríki guðs og Kobbi og fólkið í Ærlækjarseli er nefnt sérstaklega.

Síða 4, bakhlið

Útskýringum á deilingu tugabrota líkur en viðtekur óskyld umfjöllun um helstu fjandmenn Sölva á Norðurlandi og koma þar mörg kunnugleg nöfn fyrir, t.d. telur Sölvi Heimilislífið í Ærlækjarsel það guðlausasta sem hann hefur nokkurn tímann kynnst.

Skjal 1, opna 1

Á fyrri síðu þessa skjals boðar Sölvi áfram sína trú og fjallar sérstaklega um hvernig skuli feta veg dyggðarinnar, verða betri maður í dag enn í gær og standast freistingar heimsins með hjálp drottins.
Á seinni síðunni sem er ekki í beinu framhaldi af þeirri fyrri varar Sölvi við bókstafstrú en hvetur til þekkingarleitar. Hann þykist vita að þeirri leiti líkur aldrei. Hann tekur vinnubrögð heimspekinga sér til fyrirmyndar en ræður frá því að trúa á bókstafinn í blindni.

Skjal 2, framhlið

Hér hefst ný umfjöllun undir titlinum „Grein“ og enn er fjallað um trúmál. Líkt og á síðunum hér á undan er samband trúar og siðferðis höfundinum hugleikið. Hann veltir upp hugmyndum ólíkra trúarbragða og gerir grein fyrir ákveðnum eðlismunum sem hann telur vera, á milli þeirra, á sambandi siðferðis og trúarfræði. Máli sínu til stuðning vitnar hann ítrekað í ritninguna og jafnframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.

Skjal 2, opna 1

Á þessum síðum er umfjöllunarefnið samband siðferðis og trúarfræði eins og á fyrri síðum þessa kafla, jafnframt er fjallað um andstæðupari sannleika og lygi. Höfundurinn notar ritninguna sér til stuðning og vitnar jaframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.

Skjal 2, opna 4

Á þessum síðum er umfjöllunarefnið samband siðferðis og trúarfræði eins og á fyrri síðum þessa kafla, jafnframt er fjallað um andstæðupari sannleika og lygi. Höfundurinn notar ritninguna sér til stuðning og vitnar jaframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.
Á seinni síðu þessa skjals hefst ný umfjöllun þar sem velt er upp þeirri spurningu hvað felist í hugtakinu trúarbrögð.

Handritabrot sem inniheldur hugleiðingar um trú og siðfræði

Greinilega hluti af bók spekingsins um siðfræði. Á þessari síðu er 2.grein en þar fer mest fyrir staðhæfingum höfundsins að verkið sé hans en ekki Jakobs Péturssonar á Breiðumýri sem Sölvi sakar um að hafa skrifað upp handritið og sagt það sína ritsmíð. Á síðunni segir að Jakob kalli sig Sigurgeir, mögulega höfundarnafn.

Katlamálsskjóla

Titilinn vísar til rúmmálseiningar sem notuð er í Jónsbók og texti Sölva og útreikningar miða að því að komast að hvert inntak einingarinnar var nákvæmlega. Hann rekur ýmsar heimildir og gerir grein fyrir ýmsum mælieiningum fornum og beitir flóknum óskiljanlegum reiknikúnstum til að komast að hinu sanna.
Seinni síðurnar varpa síðan einhverju ljósu á hvers vegna hann er að velta þessu fyrir sér en þar eru fjandmenn hans Schulesen og Jakob nefndir til sögunnar en þeir vita víst ekki hvað mælieiningin stendur fyrir. Hvernig þetta tengist deilum hans við þessa menn er hins vegar óljóst.

Skjal 3, framhlið

Sögumaður eggjar lesandann til að veita umhverfi sínu athygli og skilja sig með fræðslu frá skepnunum. Því næst hefst umfjöllun um sólina og reikistjörnur sólkerfisins.

Ýmsar hugleiðingar um trú og siðfræði

Á þessum síðum boðar Sölvi lífspeki sína á almennum nótum, líkt og ráðleggingar til lesenda. Hann ávarpar lesandann ítrekað og jafnvel virðist sem hann sé að ávarpa einhvern ákveðinn mann en á bakhlið síðu fjögur ávarpar hann fimmtán ára efnilegan drykkjuhrút.

Síða 2, framhlið

Áframhald á umfjöllun um ólíkar gerðir eldfjalla og „Baulutegundin“ er Sölva sérstaklega hugleikinn en hann og Eggert Ólafsson hafa einir tekið eftir ákveðnum einkennum tegundarinnar.

Síða 1, framhlið

Fyrsta spurning borin upp af „Ainu“ og „Bjeinu“ er um mörkin milli Sléttuhlíðar og Höfðasóknar. Önnur spurning er um fjöll, hálsa, hlíðar og fell.

Síða 1, framhlið

Efst á síðunni er endirinn á einhverri umfjöllun um Sölva sjálfan en síðan taka við spurningar í einni runnu sem allar snúa að landafræði á einn eða annan hátt.

Síða 1, framhlið

Á þessari síðu er sams konar samræða og fyrr var fjallað um í þessum flokki og umfjöllunarefnið það sama, þ.e. spurt er um mörk Sléttuhlíða og Höfðasóknar og um prestakall Fellssóknar en fleiri voru spurningarnar ekki að þessu sinni.

Síða 1, bakhlið

Á þessari síðu er sams konar samræða og fyrr var fjallað um í þessum flokki og umfjöllunarefnið það sama, þ.e. spurt er um mörk Sléttuhlíða og Höfðasóknar og um prestakall Fellssóknar en fleiri voru spurningarnar ekki að þessu sinni.

Results 766 to 850 of 60283