Pappírsgögn sem voru í fundagerðabók Ylfinga, í safninu er nafnalistar, tvær teikningar og (mögulega) skátapróf. Í safninu eru auk þess fjórar biblíumyndir allar með eins mynd og sama texta á bakhliðinni, einnig níu óutfyllt félagsskírteini - ákveðið var að halda eftir einu stykki af hvoru.
Innbundin og handskrifuð bók. Í bókina er skráður stofnfundur Ylfingaflokksins sem var 10. mars 1934, einnig eru færðar inn skýrslur um starfið og skrá yfir mætingar skátafélaga. Bókin er í sæmilegu ástandi, heftin sem binda hana eru orðin mjög ryðguð og farin að skemma út frá sér.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókina eru færðar fundagerðir, dagskrá viðburða og ferðasögur sveitarinnar. Bókin er vel læsileg og í ágætu ásigkomulagi.
Innbundin og handskrifuð bók. Líklega var byrjað að skrifa fundagerðir í bókina síðla árs 1936. Bókarbindingin er orðin laus, en bókin er vel læsileg og að öðru leyti í sæmilegu ásigkomulagi. Límborði er á kjölnum.
Þunn stílabók með línustrikuðum blaðsíðum, í bókina eru skráðar dagbókarfærslur Fálka. Bókin er vel læsileg og í ágætu ásigkomulagi. Límborði er á kjölnum.