Í safninu eru vélrituð og forprentuð skjöl sem á eru reglugerð, breytingatillögur og frumvarp er tengjast Bandalagi íslenskra skáta og skátastarfinu. Blöðin eru í mismunandi ástandi, sum eru orðin gulnuð og hafa rifnað aðeins.
Í safninu voru nokkur vélrituð skjöl sem á eru textar með skátasöngvum varðveittir í einni örk, eitt textablað fannst til viðbótar og var því bætt saman við. Blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð, eitt ljóðið sem er í safninu heitir Andvaraljóð og er eftir Friðrik Hansen. Tveir textar eru eftir Gunnar Einarsson, svo er blað með þremur skátasöngvum bæði á íslensku og erlendu tungumáli. Giskað er að textarnir séu frá tímabilinu 1930-1965.
Tvö lítil reikningsbókahefti með rúðustrikuðum blaðsíðum. Í öðru heftinu er manntal fyrir desember 1961 og janúar 1962, en í hinu er blótsská fyrir desember 1961 og febrúar 1962. Annað er ekki í heftunum. Blaðsíðurnar hafa gulnað og heftin hafa varðveist að öðru leyti mjög vel .