Teikning sem er hluti af Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Kort af Skagafirði sem sýnir þá staði sem komu við sögu í Sturlungu. Myndin gæti verið frá 1984 eins og aðrar myndir í sömu myndaseríu.
Teikning sem er hluti af Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Kort af Íslandi og á stendur: „Umdæmi höfðingjaætta. The Districks of the Aristocracy.“ Myndin gæti verið frá 1984 eins og aðrar myndir í sömu myndaseríu.
Teikning sem er hluti af Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Hópur manna á hestum með spjót á lofti á leið í Örlygsstaðabardaga. Myndin gæti verið frá 1984 eins og aðrar myndir í sömu myndaseríu.
Teikning sem er hluti af Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Eftir Örlygsstaðabardaga þar sem Gissur stendur hjá líki Sturlu. Til hægri má sjá mann standa við hest en vinstra megin stendur maður með skjöld. Í bakgrunni sést Mælifellshnjúkur. Myndin er frá 1984.
Teikning sem er hluti af Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Hópur fólks er inni í húsi og maður liggur látin á börum - mögulega Kolbeinn kaldaljós(?). Myndin gæti verið frá 1984 eins og aðrar myndir í sömu myndaseríu.
Teikning sem er hluti af Sturlungamyndaseríu Jóh.Geirs. Líklega þegar Kolbeinn ungi og Gissur hvíti bíða eftir sonum Sighvats fyrir utan Miklabæjarkirkju til að taka þá af lífi. Myndin er frá 1984.
Myndefnið er óljóst. Fólk virðist vera við einhverja iðn og þarna má einnig sjá litla skúra og fólk standa á tveim þeirra. Myndin gæti verið frá 1990-2000.
Skissa af húsaröð og í forgrunni er tré. Myndin er ekki teiknuð á hluta blaðsins og hægri hliðin því auð. Þar virðist hafa orðið vatnsskemmdir sem myndar sérkennilegt munstur. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Skissa af tveimur manneskjum á hestbaki - önnur þeirra virðist vera barn. Í bakgrunni eru fleiri hestar og hesthús. Staðsetningin er líklegast hesthúsin í Víðidal eða Mosfellsbæ. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Myndefnið er Austurvöllur þar sem má sjá dómkirkjuna - Hótel Borg og styttu Jóns Sigurðssonar. Í bakgrunni er Hallgrímskirkjuturn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Bæjarmynd þar sem horft er yfir á/ vatn. Staðsetning er sennilega Reykjavík - þar sem horft er yfir Elliðárdalinn á Breiðholt. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Landslagsmynd þar sem stígur liggur eftir hlíð og í bakgrunni má sjá flatlendi og og svo bláleit fjöll - mögulega Blönduhlíðarfjöll í Skagafirði. Myndin er teiknuð á blátt blað. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Landslagsmynd þar sem forgrunnurinn er gráleitur - miðja hennar grænleit og fjöll með fjólubláum útlínum í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Mynd af hópi fólks/barna við tjörn. Fimm þeirra eru í kjólum - ýmist að hlaupa að tjörninni eða huga að tveimur svönum í vatninu. Einn af þeim er klæddur í buxum og fylgist með. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Horft úr Breiðholti yfir Reykjavík - Sundahöfn og Viðey. Á götunni er bíll og fjórir hjólreiðamenn. Í bakgrunni má sjá Akrafjall og Esjuna. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Mynd af húsaþyrpingu við sjávarsíðuna - óvíst hvar - mögulega Bolungavík. Í bakgrunni er hátt fjall en í forgrunni eru tveir hrafnar. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Til hægri á myndinni má sjá traktor og í bakgrunni má sjá húsaþyrpingu og sennilega einhverskonar iðnaðarhúsnæði. Staðsetning ókunn en líklega í einhverju iðnaðarhverfi. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er óljóst en krani er fyrir miðju myndar til vinstri og í bakgrunni má sjá húsaþyrpingu. Staðsetning ókunn en líklega í einhverju iðnaðarhverfi. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af nokkrum húsum við götu og í forgrunni er tré. Myndin nær ekki yfir allt blaðið heldur er hægri og efri hliðin auð og myndin afmörkuð með svörtu striki. Myndin gæti verið frá 1955-1965.
Skissa af hesti í forgrunni til hægri og í bakgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir myndina og handan við hana er lítið hús. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af víking með hjálm og skjöld. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Mynd af vegi sem liggur af brú sem er til hægri fyrir miðju myndar - upp hæð að vinstra efra horni. Á veginum eru fjórir ljósastaurar. Í forgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir mynd og undir brúnna til hægri. Til vinstri eru hús. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Myndefnið er fremur óljóst. Á myndinni er akur og fyrir miðju má greina hús. Í forgrunni er líklega grjót (mögulega hestur). Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Bæjarmynd þar sem horft er yfir húsþök og fyrir miðju myndar má sjá kirkjuturn. Staðsetning ókunn - mögulega í Hafnafirði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Skissa af bát sem liggur á fjöru við hliðiná húsi/skúr. Þar sem smá sót er á bakhlið myndarinnar er hún líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Skissa af hestum við hús. Myndin er fremur óljós en tveir hestana eru áberandi í forgrunni ofg byggingar í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af bíl sem ekur eftir götu í fjölbýli - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.