Aðför að Oddi þórarinssyni. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Aðförin að Oddi Þórarinssyni í Geldingarholti. Sá atburður gerðist 13. janúar 1255. Gissur var í Noregi og hafði beðið Odd að stjórna liði sínu og hafa með mannaforráð að gera þar til hann kæmi aftur. Oddur rændi því sem hann vildi af andstæðingum Gissurar og stefndi til hefnda við Eyjólf ofsa, þann er brenndi Flugumýri. Er skemmst frá að segja að menn Eyjólfs komust í Geldingarholt án þess að njósn bærist og var Oddur drepinn úti á túni, þar sem hann varðist einn lengi vel, uns maður skreið aftan að honum og hélt fótum hans." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 40).
Skissa af manni ríðandi á hesti sem er með stjörnu á enninu. Í skýjunum má greina mann á hestbaki. Myndin hefur sennilega verið skissuð fyrir kvæði Hannesar Péturssonar - eins og fleiri samskonar myndir. Þá hefur það sennilega annað hvort verið fyrir Kvæðabók Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá 1955-1962.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan virðist vera af fjöru. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan er af fjöru og er mjög lík þeirri mynd sem endaði á kápu bókarinnar - nema sú var teiknuð með Olíupastel. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.
Myndin kallast: Áning í Gilhagadal. „Einstigið“. Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Skissa af hestalest fara yfir Hvítá (JGJ - 1985 - bls. 82). Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Skissa af mönnum ríðandi yfir landslag - óvíst hvar - líklegast einhversstaðar í Skagafirði. Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Skissa af hestalest fara yfir Hvítá (JGJ - 1985 - bls. 82). Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Portrettmynd af manni - óvíst hverjum (sjá mynd á blaðaúrklippu - örk 10 - kassi 14). Hann er með hatt og í bláum jakkafötum. Bakgrunnurinn er gulur - ljósbrúnn og grænn. Myndin er máluð á striga. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Portrettmynd af manni - óvíst hverjum (mögulega Oddi Einarssyni - sjá mynd á blaðaúrklippu - örk 10 - kassi 14). Hann er með hatt og í bláum jakkafötum. Bakgrunnurinn er rauður og gulur og skuggi hans áberandi bakvið. Myndin er máluð á pappír. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Myndefni er óljóst en virðist vera kyrralífsmynd þar sem flaska er í forgrunni. Á hinni hlið myndar er gróf skissa af hestum á beit í haga. Myndin gæti verið frá 1950-1960.
Skissa af hestum við hús. Myndin er fremur óljós en tveir hestana eru áberandi í forgrunni ofg byggingar í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af bát sem liggur á fjöru við hliðiná húsi/skúr. Þar sem smá sót er á bakhlið myndarinnar er hún líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Bæjarmynd þar sem horft er yfir húsþök og fyrir miðju myndar má sjá kirkjuturn. Staðsetning ókunn - mögulega í Hafnafirði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Skissa af víking með hjálm og skjöld. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Skissa af nokkrum húsum við götu og í forgrunni er tré. Myndin nær ekki yfir allt blaðið heldur er hægri og efri hliðin auð og myndin afmörkuð með svörtu striki. Myndin gæti verið frá 1955-1965.