Eldri borgarar skemma sér í Ljósheimum, hugsanlega á þorrablóti Verkakvennafélagsins Öldunnar árið 2000. F.v. Hólmfríður Sveinsdóttir (1916-2007), Kristín Bjarnadóttir (1925-), Agnar Hermannsson (1933-2014) og Anna Lilja Leósdóttir (1941-).
Tilbúnir að gefa allt eftir þegar bændur eiga í hlut segir Einar Guðmundsson bóndi á Neðri-Mýrum í viðtali í Feyki í desember 1998. Á myndinni er Einar hjá elstu kúnni í fjósinu, Búkollu sem er 11 vetra og skilar enn hágæðamjólk.
Álfadans sem ungmennafélaugin Smári og Tindastóllá stóðu fyrir á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í janúar 2000. Álfakóngur og drottning voru Valgeir Bjarnason og Hjördís Tobíasdóttir. Harmónikkuleikari var Kristján Stefánsson.
Ungmennafélaugin Smári og Tindastóll stóðu fyrir álfadansi á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í janúar 2000. Álfakóngur var Valgeir Bjarnason og drottning Hjördís Tóbíasdóttir.
Ungmennafélaugin Smári og Tindastóll stóðu fyrir álfadansi á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í janúar 2000. Álfadrottning og kóngur voru Hjördís Tóbíasdóttir og Valgeir Bjarnason.
Frá opnun meðferðar- og skólaheimilisins að Háholti í Skagafirði í desember 1998 F.v. Sveinn Allan Morthens (1951-) forstöðumaður heimilisins, Magnús Heiðar Sigurjónsson (1929-) framkvæmdastjóri Héraðsnefndar og Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu.
Frá vinstri, Eva Snæbjarnardóttir (1930-2010) skólastjóri Tónlistaskólans og Óskar Guðvin Björnsson (1957-) skólastjóri Árskóla. Á milli þeirra er stytta af Jóni Þ. Björnssyni skólastjóra.
Minnisvarði um síðasta ábúandann á Skarðsá í Sæmundarhlíð Pálínu Konráðsdóttur (1899-1992) var afhjúpaður á Skarðsá haustið 1999. Til vinstri Ingibjörg Hauksdóttir Hafstað (1951-) í Vík og t.h. Ingibjörg Sigurðardóttir á Varmalandi, en hún afhjúpaði minnisvarðann.
Kjartan Þór Kjartansson (1966-) og Sigurlaug Kristín Eymundsdóttir (1973-). Skipverjar á Málmey 1999. Grein í Feyki 14. júlí 1999. "Ástin blómstrar þó mokfiskist"
Nemendur Hólaskóla í Hjaltadal vorið 1999. Ásta Skarphéðinsdóttir frá Úlfsbæ í Bárðardal, Guðrún Hjaltadóttir frá Raftholti í Holtum og Matthildur Jónsdóttir frá Selfossi nemar á ferðamálabraut.
Rafiðnaðarsamband íslands færði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra kennslutæki á 20 ára afmæli skólans í janúar 2000. Frá vinstri, Gísli Sigurðsson (1964-), Guðmundur Gunnarsson (1945-) formaður Rafiðnarsambandsins, Jóhann Ingólfsson (1957-), Stefán Héðinsson (1968-), óþekktur og Arnar Halldórsson (1967-).
Við setningu Sæluviku í Safnahúsinu vorið 1998 var opnuð sýning á trélist. Þekkja má Guðmund Márusson lengst t.v. og í sætaröðinni fyrir framan f.v. Snorri Björn Sigurðsson, Hjalti Pálsson, Gísli Frostason og Marteinn Steinsson. Fremst eru Ingveldur Rögnvaldsdóttir og Guttormur Óskarsson.
Flutningur þróunarsviðs Byggðastofnunar til Sauðárkróks sumarið 1998. Athöfn í Bóknámshúsu FNV. Þekkja má í fremstu röð f.v. Davíð Oddsson (1948-), Geir H. Haarde (1951-) og Páll Pétursson.
Flutningur þróunarsviðs Byggðastofnunar til Sauðárkróks sumarið1998. Þriðji frá vinstri er Egill Jónsson á Seljavöllum formaður Byggðastofnunar og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri lengst t.h. Hinir óþekktir.
Vorið 1999 skoruðu 160 íbúar á Hofsósi á sveitastjórn Skagafjarðar að fá að njóta starfskrafta Björns Björnssonar áfram sem skólastjóra á Hofsósi . Á myndinni tekur Snorri Björn Sigurðsson (1951-) sveitarstjóri við undirskriftum þar að lútandi fyrir framan veitingastofuna Sólvík. Konurnar eru f.v. Herdís Fjelsted Jakobsdóttir (1947-), Eyrún Þorleifsdóttir (1965-) og Guðrún Þorvaldsdóttir (1961-).
Starfsfólk Skólaskrifstofu Skagafjarðar haustið 1996. Frá vinstri Þóra Björk Jónsdóttir, kennslufulltrúi. Allyson Macdonald forstöðumaður og Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir, sálfræðingur.
Útskrift í Hólaskóla haustið 1999 en þá brautskráðust 27 búfræðingar. Skúli Skúlason nýráðinn skólameistari lengst t.v. og Jón Bjarnson fráfarandi skólastjóri lengst t.h.
Frá verðlaunaafhendingu á Grettisbikarnum í Sundlaug Sauðárkróks sumarið 1999. Frá vinstri, Valgeir Steinn Kárason (1951-) sem vann bikarinn það ár og faðir hans Kári Steinsson (1921-2007) sem vann bikarinn þegar fyrst var keppt um hann árið 1940 í Varmahlíð.
Leikhópur Ungmennafélags Tindastóls sem setti upp revíuna Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson vorið 1997. Frá vinstri Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942 á bakvið-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-), Auðunn Blöndal (1980-), Indriði Þór Einarsson (1979-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-). Mynd var tekin í barnaskólanum þar sem sungin voru lög úr revíunni. Rás 1 var á staðnum og tók upp. Leikritið var sett upp árið 1997 af Umf. Tindastóli í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Höfundurinn Jón Ormar Ormsson er niðri í horninu t.h.
Alþýðusönghátíð sem haldin var í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki vorið 1997. Frá vinstri, Jón Ormar Ormsson (1936-), Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-), Edda Vilborg Guðmundsdóttir (1943-), María Gréta Ólafsdóttir (1956-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Halldóra Helgadóttir (1945-), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-) og Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-). Jón Ormar Ormsson sá um dagskrána.
Leikritið Er þetta ekki mitt líf, eftir Brian Clark, sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp haustið 1982. Til vinstri Guðni Friðriksson (1951-) og Helga Sigríður Hannesdóttir (1934-2006).
Galdrakarlinn í Oz í uppsetningu Leikfélags Sauðárkróks haustið 1984. Leikstjóri Hávar Sigurjónsson og er hann efst t.h. Hilmar Sverrisson er lengst til hægri. Aðrir óþekktir.
Galdrakarlinn í OZ í uppsetningu Leikfélags Sauðárkróks, frumsýnt 9. desember 1984. Pjáturkarlinn Erlingur Viðar Sverrisson (1952-) t.v. og Friðrikka Hermannsdóttir.
Leikklúbburinn á Hvammstanga setti upp, Hreppstjóran á Hraunhamri eftir Loft Guðmundsson síðla vetrar 1993. Leikstjóri Hörður Torfason. Lengst t.h. er Júlíus Guðni Antonsson, hin óþekkt.