Dvalarheimili aldraðra við Sjúkrahúsið á Sauðárkróki tekið í notkun um mánaðarmótin október-nóvember árið 1986. Það var Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem afhenti stjórn Sjúkrahússins húsið.
Börn á Sauðárkróki sem héldu hlutaveltu í júlí 1985. F.v. Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Ragnar Páll Árnason (1976-), Dagur Jónsson (1976-) og Atli Björn Þorbjörnsson (1976-).
Sameiginlegt þorrablót vistmanna og starfsfólks á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu á Sauðárkróki í febrúar 1989. Þekkja má Björn Egilsson frá Sveinsstöðum vinstra meginn við borðið og Óskar Stefánsson næst hægra megin.
Mynd tekin við Barnaskólann við Freyjugötu haustið 1998. Foreldrafélagið smíðaði leiktæki fyrir börnin. F.v. Sigurgísli Ellert Kolbeinsson, Ólafur Þorbergsson, Björn Svavarsson og Magnús Sigfússon.
Leikritið Skugga-Sveinn var sett upp hjá Leikfélagi Blönduóss á Húnavöku 1985. Leikstjóri var Oktavía Stefánsdóttir og Njáll Þórðarson lék Skugga-Svein. Um sumarið var svo farið með sýninguna til Svíþjóðar og Noregs.
Gestir frá vinabæjum Sauðárkróks í heimsókn á Sauðárkróki sumarið 1981. Aftari röð frá vinstri: Margrét Ingvadóttir, Margrét Jenny Gunnarsdóttir (1947-), Anna Rósa Skarphéðinsdóttir (1948-), Sigurður Jóhannes Ágústsson (1947-), Sveinn Friðvinsson (1938-), Friðrik Brekkan, Árni Guðmundsson og Þorsteinn Þorsteinsson bæjarstjóri. Fremri röð óþekkt nema Páll Pálsson veitustjóri er lengst t.h.
Óskar Pétursson (1953-) t.h. æfir með Skagfirsku Söngsveitinni í Drangey félagsheimili Skagfiringafélagsins í Reykjavík, en sveitin söng á Sæluviku vorið 1986. Stjórnandinn Björgvin Þ Valdimarsson er lengst t.v.
Sýning á munum í eigu Andrésar Valberg var sett upp í Gagnfræðaskólanum á Sauðárkróki vorið 1988. Andrés gaf síðan Sauðárkrók stærstan hluta safnsins. Frá vinstri: Óþekktur, Jón Andrés Sveinn Valberg (1919-2002) Steingrímur Friðriksson (1906-1997), Marteinn Bergmann Steinsson (1909-2004), Óskar Örn Óskarsson (1973-).
Krakkar á Sauðárkróki í Friðarhlaupi sem fór kringum landið sumarið 1987. F.v. Tveir óþekktir, Rúnar Arnarson (1974-), Ingi Freyr Ágústson (1975-), Ögmundur Arnarsson (1973-), Ómar Sigmarsson (1976-), óþekktur, Smári Björnsson (1975-) og lengst t.h. Atli Björn Þorbjörnsson (1976-).
Biskup Íslands messaði í Ketukirkju á Skaga vorið 1991. Að messu lokinni flutti Lárus Björnsson oddviti í Neðra-Nesi skemmtilega tölu í Skagaseli um sr. Hjálmar Jónsson sem hafði reynst hin mesta óveðurskráka.
Fjölnota fjárhús voru tekin í notkun á Hólum vorið 1992. Ámyndinni er sr. Bolli Gústavsson að blessa bygginguna. Heimismenn eru fjær en þeir sungu við athöfnina.
Krakkar úr árgangi 1978 í Laugabakkaskóla í sólarhrings lestrarmaraþoni veturinn 1993-1994, til fjáröflunar fyrir Danmerkurferð. Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Dæli, Jón Hilmar Karlsson (með gleraugu og bók) og Harpa Ragnarsdóttir, óþekkt.
Krakkar úr árgangi 1978 í Laugabakkaskóla í sólarhrings lestrarmaraþoni veturinn 1993-1994, til fjáröflunar fyrir Danmerkurferð. Efri röð frá vinstri: Ingibjörg Jónsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Katrín Þóra Víðisdóttir, Sesselja Aníta Ellertsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Þorgerður Tómasdóttir, Sonja Karen Marinósdóttir og Gunnar Ægir Björnsson.
Lengst til vinstri stendur Örn Ingi, þriðji f.v. Vigfús Vigfússon og María Björk Ingvadóttir lengst t.h. Líklega er þetta í tengslum við Sumarsæluviku árið 1994 en þá var Örn Ingi framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Þessi hópur er líklega veitingarhúsarekendur á Sauðárkróki sem tóku sig saman og buðu upp á sérbruggaðan bjór í tilefni hátíðarinnar.
Ráðstefna um stjórnmál og sveitastjórnir haldin í bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í júní 1997. F.v. Steinunn V. Óskarsdóttir borgarfullfrúi, Sif Friðleifsdóttir alþingismaður, Jóhann Geirdal bæjarfullrtúi og Sturla Böðvarsson alþingismaður. Þessi 4 voru frummælendur á ráðstefnunni. Tvö lengst t.h óþekkt.
Í júní 1997 var afhjúpaður minnisvarði um tilurð fyrstu götunnar á Króknum, Frúarstígnum (nú Freyjugata), en hann var gerður í lok nítjándu aldar að tilstuðlan kvenna. Minnisvarðinn var gjöf frá 4 karlaklúbbum í bænum. Hulda Sigurbjörnsdóttir afhjúpaði minnisvarðann. Á myndinni eru f.v. Helga Sigurbjörnsdóttir, Steinunn Hjartardóttir, Páll Brynjarsson, Jón Ormar Ormsson og Jón Þórisson.
Tilg. Álfadans um áramót 1996-97 undir handleiðslu hjónanna Jóhönnu Karlsdóttur og Karls Bjarnasonar, en dansað var við álfabrennur á þrem stöðum þ.e. Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð.
Á kosningardaginn vorið 1998 var kveikt ruslabing sem beið þess að verða flokkaður í malarnámunum norðan á Gránumóum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, þó þetta væri eldsmatur góður. Augljóslega hafði verið kveikt í.