vinnuvaka Kvenfélagasambands Skagafjarðar haldin að Löngumýri í mars 1996. Við enda borðsins, t.v. Pálína Sumarrós Skarphéðinsdóttir (1944-) og t.h. við borðshornið Ingibjörg Jóhannesdóttir, Miðgrund þá Ingibjörg Jóhannesdóttir, Ketu, Gígja Hrund Símonardóttir Ketu og óþekkt.
Tilg. Fundur í Ræðuklúbbi Sauðárkróks á Kaffi Krók (1996) um Jónas Kristjánsson lækni. F.v. Sigríður Sigurðardóttir, Friðrik Jón Jónsson (1925-), Gunnar Hörður Ingimarsson (1943- við vegginn), Bragi Skúlason (1938-), Jón Ormar Ormsson (1938-), Anna Pála Guðmundsdóttir (1923-), Páll Ragnarsson (1946-) og Unnar Rafn Ingvarsson (1968-). Samskonar mynd og 1105.
Fundur um safnamál á Kaffi Krók, sem Ræðuklúbbur Sauðárkróks stóð fyrir í nóvember 1996. Frá vinstri Árni Ragnarsson (1949-), Knútur Aadnegard (1951-), og Þór Magnússon, þjóðminjavörður (í ræðustól).
Lomberklúbburinn Ponti á Hvammstanga í desember 1996. Frá vinstri Þorbjörn Ágústsson, Karl Sigurgeirsson, Eggert Leví, Páll Sigurðsson og Sigfús Ívarsson.
Securitas-hópurinn frá Sauðárkróki varð í þriðja sæti í Freestyle danskeppni í Tónabæ í febrúar 1994. Hópinn skipuðu. Efstar: Gerður Alda Gylfadóttir (1978-) t.v. og Þórdís Ósk Rúnarsdóttir (1978-), Mið röð til vinstri: Áslaug Birna Jónsdóttir (1978-) og Steina Margrét Finnsdóttir (1978-), Fremst: Ragndís Hilmarsdóttir (1978-). Hópurinn dansaði undir stjórn Guðrúnar Jónu Valgeirsdóttur.
Til vinstri Jónas Kristjánsson, ritstjóri, Reykjavík tekur við ljósrituðum fundargjörðum Framfaraklúbbs Sauðárkróks úr hendi Árna Ragnarssonar formanni afmælisnefndar Sauðárkróks á minningarkvöldi um Jónas Kristjánsson lækni sem Ræðuklúbbur Sauðárkróks stóð fyrir á Kaffi Krók í september 1996. Sitjandi, Anna Kristín Gunnarsdóttir (1952-).
Unnið að því að setja saman rör sem undirgöng undir Sæmundarhlíð frá Bóknámshúsi að heimavist Fjölbrautaskólans árið 1996, en björgunarsveitin Skagfirðingasveit sá um samsetningu röranna.
Herdís Á. Sæmundardóttir (1954-) formaður skólanefndar tekur fyrstu skólfustungu að byggingu B-álmu og Kubbsins við Árskóla í ágúst 1999. Aðstoðarmaður á gröfu óþekktur.
Fyrsta skóflustunga tekin að byggingu B-álmu Árskóla í ágúst 1999. F.v. Herdís Á Sæmundardóttir formaður skólanefndar, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Helgi Sigurðsson, Þórarinn Sólmundarson (á bak við), Stefán Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Steinunn Hjartardóttir, Óskar G. Björnsson, Sigurbjörg Guðjónsdóttir (framan við), Selma Barðdal og Hallfríður Sverrisdóttir (sést að hluta). Trésmiðjan Borg sér um verkið.
Leikfélag Skagastrandar setti upp í félagsheimilinu Fellsborg, leikritið Stálblóm í Fellsborg eftir Róbert Hartling, síðla vetrar árið 1993. Leikstjóri jónas Jónasson.
Dægurlagakeppni Kvennfélags Sauðárkróks vorið 1994. Frá vinstri Kristján Gíslason (1969-), Vigdís Gígja Ingimundardóttir (1977-), Róbert Óttarsson (1972-) og Valdís Guðbrandsdóttir (1977-). Sigurvegari keppninnar var Björn Hannesson tónlistarmaður á Hvammstanga.
Kvenfélag Sauðárkróks færir Sjúkrahúsi Skagfirðinga fæðingarmonitor (sírita) til notkunar á fæðingadeild, í desember 1995. Aftast eru María Ingiríður Reykdal Hauksdóttir, Starrastöðum (1958-) t.v. og Branddís Eyrún Benediktsdóttir (1946-). Í miðröð er Helena Magnúsdóttir í miðjunni, hinar óþekktar og fremst eru Sigríður Jónsdóttir frá Vallanesi t.v. og við gluggann er Lovísa Símonardóttir (1948-).
Hans Birgir Friðriksson (1953-) að vinna að grjóthleðslu í Kirkjustíg sumarið 1993. Honum til aðstoðar eru Arndís Jónsdóttir (1977-) og Bára Tavsen Rúnarsdóttir (1977-).
Félagar úr Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit. F.v. Páll Sighvatsson, Sigurður H. Ingvarsson, Haraldur Jóhann Ingólfsson (1967-) og Þorsteinn Valsson(1967-). Tilefnið óþekkt.
Dúndrandi sveifla á Hótel Íslandi á frumsýningu "Syngjandi sveiflu" Geirmundar Valtýssonar (1944-) í febrúar 1993. F.v. Geirmundur, Guðrún Gunnarsdóttir, óþekktur, Berglind Björk Jónasdóttir og Ari Jónsson.
Sýningin "Konur á Króknum" sem fimm kvennasamtök settu upp í Barnaskólanum vorið 1997 en þar var sýnd vinnuaðstaða húsmæðra áður fyrr. Börnin eru Halldór Örn Kristjánsson (1991-) og Björg Árdís Kristjánsdóttir (1987-).
Kálfur á leið til slátrunar í Sláturhúsi KS haustið 1993 slapp og synti mílu á haf út áður en hann náðist. Fremst í batnum er hugsanlega Ragnar Magnússon þá Haraldur Ingólfsson og næst stýrishúsinu er sláturhússtjórinn Árni Egilsson. Maðurinn í sjónum óþekktur.
Dúndrandi sveifla á Hótel Íslandi á frumsýningu "Syngjandi sveiflu" Geirmundar Valtýssonar (1944-) í febrúar 1993. F.v. Guðrún Gunnarsdóttir (1963-) Berglind Björk Jónsdóttir, Ari Jónsson (1946-) og Geirmundur fremstur. Fjær er Magnús Kjartansson (á hljómborð).
Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks 1996. Til vinstri við hljóðnemann er Björn Björnsson (1943-) þá Alfreð Guðmundsson Geirmundur Valtýsson (1944-), Kristján Hreinsson textahöfundur, Helga Sigurbjörnsdóttir (1943-) og Sigurður Björnsson (1940-). Geirmundur vann keppnina.
Frá dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks (1996). Frá vinstri Björn Björnsson (1943-), óþekktur, Alfreð Guðmundsson (1962-) tekur á móti viðurkenningu frá Branddísi Eyrúnu Benediktsdóttur (1946-) Milli þeirra er Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-). Sér í Helgu Sigurbjörnsdóttur bak við Branddísi og Sigurður Björnsson (1940-). er lengst t.h.
Kvenfélag Sauðárkróks hélt upp á 100 ára afmæli í íþróttahúsinu í ágúst árið 1995. Þjóðdansahópur kvenfélagsins sýndi dans en danshópinn skipa María Gréta Ólafsdóttir (1956-), Jóna Björg Heiðdal (1948-), Branddís Eyrún Benediksdóttir (1946-), Margrét Jenný Gunnarsdóttir (1947-), Guðbjörg Sveinsdóttir Bjarman (1936-), Helga Sigurbjörnsdóttir ( 1943-), Lára Angantýsdóttir (1938-), Engilráð Margrét Sigurðardóttir (1941-), Lovísa Símonardóttir (1948-), Sólborg Björnsdóttir (1932-), Rannveig Jóhannsdóttir og Kristín Jóhannsdóttir.
vinnuvaka Kvenfélagasambands Skagafjarðar á Löngumýri í mars 1996. Frá vinstri: Jónína Pálmarsdóttir, Auður Ketilsdóttir, Lambanesi, Margrét Stefánsdóttir, Brennigerði, María Guðfinnsdóttir, Ökrum, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Miðgrund og Sigríður Eiríksdóttir, Dýrfinnustöðum.
Grænlenskur heimskautafari Jens Jörgen (Ono Fleischer) hélt fyrirlestur á Hótel Mælifelli um heimskautaferðir í mars 1994. Hann hafði farið á hundasleða frá Thule á Grænlandi til Alaska um 4000 km leið.
Jens Jörgen (Ono Fleischer) grænlenskur heimskautafari var á Sauðárkróki í mars árið 1994 og hélt fyrirlestur um heimskautaferðir á Hótel Mælifelli, en hann hafði farið á hundasleða frá Thule á Grænlandi til Alaska um 4000 km leið.
Tilg. Frá fundi á Kaffi Krók (1996) um Jónas Kristjánsson lækni sem Ræðuklúbbur Sauðárkróks stóð fyrir. F.v. Sigríður Sigurðardóttir, Friðrik Jón Jónsson (1925-), Gunnar Hörður Ingimarsson (1943- við vegginn), Bragi Skúlason (1938-), Jón Ormar Ormsson (1938-), Anna Pála Guðmundsdóttir (1923-), Páll Ragnarsson (1946-) og Unnar Rafn Ingvarsson (1968-).
Í desember 1994 var þess minnst að 50 ár voru frá stofnun Húsmæðraskólans á Löngumýri og því efnt til afmælisfagnaðar að Löngumýri þar sem um 200 fyrrum námsmeyjar komu saman. Aftari röð frá vinstri Ásdís Krisjánsdóttir (1931-), Herdís Björnsdóttir, Varmalæk, Kristín Þórarinsdóttir frá Ríp, Helga Guðjónsdóttir, Sigríður Márusdóttir (1930-), Hjaltastaðahvammi, Guðríður Björnsdóttir, Sigurlaug Guðrún Gunnarsdóttir (1933- 2014) Sauðárkróki. Sitjandi f.v. Valborg Árnadóttir, Guðný Kolbeinsdóttir, Jóhanna Lárentsínusdóttir (1926-) og Lára Guðmundsdóttir.
Þátttakendur á námskeiði í markaðssetningu á eldisfiski og sjávarafurðum sem haldið var á Hólum haustið 1990. Claes Kjaer Methisen t.v. og Hinrik Gústaf Ólafsson.
Anna Kristín Gunnarsdóttir (1952-) og Jónas Kristjánsson ritstjóri Reykjavík á fundi tileinkuðum Jónasi Kristjánssyni lækni sem haldinn var á Kaffi Krók í september 1996. Ræðuklúbbur Sauðárkróks gekkst fyrir fundinum.
Kvöldstund í Sauðárkrókskirkju 23. janúar 1997 til heiðurs Eyþóri Stefánssyni tónskáldi en þann dag varð Eyþór 96 ára. Aftari röð frá vinstir: Gísli Gunnarsson (1957-), Árni Ragnarssn (1949-), Brynjar Pálsson (1936-), Í fremri röð er svo fólk úr fjölskyldu Eyþórs. Frá vinstri: Eyþór Kristján Einarsson (1959-), Ásgerður Þórey Gísladóttir (1963-), Atli Stefán Einarsson (1966-), Óli Páll Engilbertsson (1961-) og Sigríður Einarsdóttir (1961-). Aftan við er svo Þuríður Pétursdóttir (ber í gluggann).