Pappírsgögn í góðu ástandi frá rekstri Grunnskólans að Hólum, Bókhald, reglurgerðir, fréttabréf, handskrifuð bréf og fl. Gögnin hreinsuð af fjölrituðum eintökum og bréfaklemmur fjarlægðar. Gögnin eru sett í öskjur frá skjalamöppum og látin halda sér að mestu, elstu gögnin neðst og yngstu gögnin efst einhver hreinsun af tvíritum.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð og er gjafabréf til Hóladómkirkju, til minningar um Gísla Sigurðsson og Kristínu Björnsdóttur er bjuggu í Neðra-Ási í Hjaltadal. Gefið af börnum þeirra. Staðfesting á afhendingu bankabókar er handskrifuð á bréfið og undirrituð af Kristjáni Eldjárn, síðar forseta.
Tekið á Hólum áður en lagt var af stað til Sauðárkróks veturinn 1921- frá vinstri: Gunnar Valdimarsson á Víðimel- Ásmundur Eiríksson frá Reykjarhóli í Fljótum- Páll Jónsson frá Brekkukoti og Óli Hjartarson frá Ási í Kelduhverfi. Gefandi: Gunnar Valdimarsson á Víðimel 17.07.1978. Klæða sig í bestu brók bæði Páll og hinir sigla nú á Sauðárkrók sannir kvennavinir. Benjamín Sigvadason
Bókhaldsgögn bréfaskriftir og kvittanir. Kirkjukórsgögn og bréf frá biskup Íslands Sigurbirni Einarssyni 5. des. 1960. Bók um legstaðaskrá 1967 - 1991, og fjórir litlir bæklingar. Hátíðarmessa á Hólum 4 des 1988. Héraðasfundur Skagafjarðarprófasts 14 okt.1984. Biskupsvígsla að Hólum 27. júní. 1982. Tveir garðar fornir í Fljótum, Páll Sigurðsson frá Lundi, 1979.
Útgefið rit í stærðinni 22,5 x 14,2 cm. Hólaljóð. Biskupsvígsla á Hólum 10. júlí 1910, er vígður var Geir biskup Sæmundsson. Skáldið Matthías Jockumsson flutti ljóðið í Hóladómkirkju á vígsludaginn. 8 bls. Félagsprentsmiðjan 1910.
Frá vinstri: Freyja Sigurðardóttir frá Hólum í Hjaltadal, f. 10/11 1936. Karítas Kristjánsdóttir frá Hólum í Hjaltadal búsett í Reykjavík, f. 30/5 1941
Efri röð frá vinstri: Hjalti Pálsson. Sigurður Pálsson. María Pálsdóttir. Anna Pálsdóttir. Sigurlaug Pálsdóttir. Trausti Pálsson. Sigurður Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Hörður Jónsson. Harpa Jónsdóttir. Gunnar Guðmundsson
Frá vinstri: Óþekkt. Margrét Árnason hfr. á Sjávarborg II. Óþekkt. Haraldur Árnason frá Sjávarborg, skólastjóri á Hólum í Hjaltadal, (maður Margrétar).
Myndin er tekin 1952 við þvottahúsið Hólum í Hjaltadal -.frá vinstri: Magnús Benedikt Steinþórsson. Anna Steingrímsdóttir. Trausti Pálsson. Þorleifur Hjaltason. Gunnar Svanur Hafdal
Þorbjörg Árnadóttir (1855-1932)- kona Sigfúsar Vigfússonar á Geimundarstöðum- og dóttir hennar- Sigríður Benediktsdóttir (1886-1948) frá Hólum í Hjaltadal- kona Arngríms Sigurðarssonar- Litlu-Gröf Skag.
Börn Hermanns Jónassonar skólastjóra á Hólum í Hjaltadal og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur. Hallgrímur Hermannsson (1892-), flutti til Vesturheims og Sigríður Hermannsdóttir (1889-1921), búsett í Reykjavík.
Þorbjörg Árnadóttir (1855-1932)- kona Sigfúsar Vigfússonar á Geirmundarstöðum- og dóttir hennar Sigríður Benediktsdóttir (1886-1948) frá Hólum í Hjaltadal- kona Arngríms Sigurðarssonar Litlu-Gröf Skag.
Bæklingur í stærðinni 17,8 x 11,4 cm. Jón Arason Hólabiskup. Fæddur á Grýtu í Eyjafirði 1484. Hálshöggvinn í Skálholti 7. nóv 1550. Alls 4 bls bæklingur með ljóði eftir Pál Ólafsson. Bæklingurinn er áritaður: "Til hr Árna Þorkelssonar. Vinsaml. frá höfundi. Alls 12 bls., auk kápu.
Jón Jónsson, hreppstjóri á Hafsteinsstöðum, leitar til sáttanefndar Viðvíkurssáttumdæmi varðandi skuld Þorgils Hjálmarssonar, Hólum, hjá verslun Á. Ásgeirssonar á Ísafirði en Jón hafði umboð verslunarinnar til að innheima þessa skuld. Plaggið inniheldur erindi Jóns (nefnd kæra seinna í plagginu) ásamt viðbrögðum og niðurstöðu. Hefst 5. janúar 1903 og lýkur 13. janúar 1903.
Tilg. 850 ára afmæli biskupsstóls á Hólum í ágúst 1956 (eða Hólahátíð í júlí 1957 þar sem minnst var 75 ára afmælis Hólaskóla). Samkoma við kirkjugarðinn á Hólum. Í ræðustól er hugsanlega Sigurður Sigurðsson sýslumaður.
Sjá mynd 2624. Hópur fólks við kirkjugarðinn á Hólum. Jón Þ. Björnsson kennari með hatt á miðri mynd og t.h. við hann Kristján Ingi Sveinsson og séra Björn Björnsson.
Kort sem eru sett hér koma frá einkasafni Harðar Jónssonar oddvita og eru sett með Hólahrepp því þar lágu gögnin við komu. Teiknistofa Laugarvegi 96. Hrafnkell Thorlasíus arkitekt , Reykjavík jan.1974 eru með afstöðumynd, grunnmyndir og útlitsmyndir af Barnaskóla Hólum í Hjaltadal. Sökum stærðar teikningar er hún brotin saman í uppruna frá gögnum. Einnig Grunnmyndsteikning og innréttingateikning fyrir smábarnaskóla Hólum í Hjaltadal, sama teiknistofa, sept. 1974. Bréfaskriftir 3 blöð og teikning af deiliskipulagi einbýlishúsalóða á Hólum í Hjaltadal, Árni Ragnarsson arkitekt júlí 1987.
Gögnin í safninu segja langa sögu félagsins en þau eru í misgóðu lagi svo gott væri að mynda elsta hluta safnsins til að halda heimildum félagsins. Hreinsun var úr safni af heftum, bréfaklemmum og umslögum. Fundagerða- reikninga og skýrslubækur innihalda skrár yfir keyptar bækur, félagaskrá, bókhald og fundagerðir. Samkvæmt bókskrárbókum eru bókum skipt í deildir eftir því um hvað þær fjalla. Samanber deild E eru leikrit. Útektar bækur eru skráðar á bæjarheiti, ártal og bókaheiti. Gjafabækur frá Friðbirni Traustasyni og er það heillöng bókaskrá. Lítil ljóðabók Milli vita er skrifuð með mjög fallegri rithönd og gaman væri að koma ljóðunum út í veröldina. Bók er eftir Sigríði K Traustadóttur 24.04. 1886 - 02.07.1951.
Lítil harðspjalda handskrifuð ljóða og minnisbók Sigríðar Traustadóttur. Hún ritar sín ljóð og annarra í þessa litlu bók á meðan hún er á ferðalagi sínu. Hún er einnig að þýða í bókinni ljóð eftir Colly Monrad Rósir lífs og dauða og Kvöldvísa eftir Göethe, ásamt því að yrkja ljóð á norsku, hér er einnig ljóð um Jón Magnússon Ósmann.
Ljósmynd í stærðinni 8,8x12,5 cm. Á myndinni sést Pálmi Jónsson á Akri, þáverandi landbúnaðarráðherra, taka fyrstu skóflustunguna að laxeldisstöð á Hólum í Hjaltadal á ýtu Garðars Guðjónssonar.
Fjórir drengir á Hólum í Hjaltadal. Hóladómkirkja í baksýn. Tilgáta: Jón Norðmann Jónsson lengst til vinstri og Sigurgeir Snæbjörnsson lengst til hægri.