Handskrifaðar fundargerðir, dagskrá funda, lög Búnaðarfélags Seyluhrepps og félagatal. Í möppunni er einnig handskrifuð ræða dags. 17. mars 1923 sem Valdimar Guðmundsson flutti á búnaðarfundi að Stóru-Seylu í tilefni af 40 ára afmæils Búnaðarfélags Seyluhrepps.
18 ársreikningar, handskrifaðir á blöðum í A3 stærð sem eru brotin í folio broti, inni í þeim eru bókhalds fylgigögn. Skjölin eru að mestu í góðu ásigkomulagi en talsvert hefur rifnað og er mjög viðkvæmt viðkomu.
Innbundið hefti með forprentuðum skýrslum og handskrifuðum upplýsingum um jarbætur í Seyluhreppi, fyrir tímabilið 1911-1912. Bókin er þunn, með um 20 blaðsíður og nokkrur blöð hafa verið rifin úr, Hefti binda blöðin við þykkan pappa og límt er yfir kjölinn.
Innbundin bók með forprentuðum eyðublöðum með handskrifuðum upplýsingum um framkvæmdir á bújörðum. Bókin er í góðu ásigkomulagi en bindingin er farin að losna.
Elstu skýrslurnar eru handskrifaðar með upplýsingar um ástand á bújörðum. Einnig eru forprentuð skýrsluform sem eru með handskrifuðum upplýsingum um ástand bújarða og framkvæmdir á þeim. Skýrslurnar eru heillegar en blettóttar, elstu skýrslurnar eru mjög viðkæmar, ryðguð hefti voru fjarlægð.
Handskrifuð, vélrituð og ljósrituð pappírsgögn, m.a. formlegt erindi til hreppstjórnar Seyluhrepps, samningur um húsnæði, lög foreldrafélagsins. Gögnin eru öll vel varðveitt.
Pappírsgögn handskrifuð, sex lítil blöð vel læsileg sett saman í eina örk eins og þau lágu í safni. Segja frá stofnfundi og næstu fundum en ekkert um lög félagsins, tilgang né framvindu félagsins.
Innbundin bók með línustrikuðum blaðsíðum með handskrifuðum fundargerðum. Bókin er læsileg og varðveist sæmilega. Bókakjölurinn og kápan hafa verið límd sama með límbandi. Límborði er á kjöl bókarinnar og bindingin er orðin léleg.