Viðar blað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi 1916. Meðal efnis er grein um ferðalög, um nautgriparækt, um kosningar, um draum, þegnskylduvinnu og ýmislegt fleira.
Vísur eftir Ingimar Magnússon frá Ytri-Hofdölum. Vísurnar eru handskrifaðar á 4 pappírsarkir í A5 stærð, með rithönd Marteins Steinssonar. Ástand skjalsins er gott.
Handskrifaðar vísur, eftir Guðmund Inga, Mig langar uppí sveit. Vísa þar sem ekki er getið höfundar sem byrjar svona Jólasveinar fara um fjöll. Blað þar sem Sigurjón Jónasson er tilgreindur höfundur á 3 blaðinu en þar eru 2 vísur: Haustvísur og Spóinn