Auglýsingarnar eru prentaðar á dagblaðapappír, tvær pappírsarkir í A4 stærð og eina í A3 stærð. Með liggur umslag merkt bókasafninu, ásamt tilboði sem vélritað er á pappírsörk í folio stærð. Ástand skjalanna er gott.
Vesturfarasetrið Hofsósi. F.v. Sigurrós Þórleif Stefánsdóttir, Guðrún H. Þorvaldsdóttir, Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Skýrsla er tölvuprentuð á 5 pappírsarkir í A4 stærð. Hún fjallar um starfsemi safnsins árið 2004. Höfundur er Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri. Ástand skjalsins er gott.
Tölvupóstsamskipti Byggðasafnsins og Ferðamálastofu. Varðar styrki. 2 pappírsarkir í A4 stærð. Með liggur umsókn, 2 pappírsarkir. Ástand skjalsins er gott.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og Háskólans á Hólum. 10 pappírsarkir í A4 stærð. Varðar ýmis mál. Bréfritarar fyrir hönd skólans eru Anna Vilborg Einarsdóttir, Guðmundur Björn Eyþórsson og Erla Björk Örnólfsdóttir. Ástand skjalsins er gott.
Samkomulagið er 1 pappírsörk í A4 stærð. Það kveður á um afnot af húsum jarðarinnar Tyrfingsstaða á Kjálka til námskeiðahalda fyrir gamalt handverk í torf-og grjóthleðslu og járnsmíðum. Ástand skjalsins er gott.
Samningurinn er 1 pappírsörk í A4 stærð. Með liggur samhljóða samningur á íslensku. Hann kveður á um samvinnu milli Vesturfarasetursins á Hofsósi, Byggðasafns Skagfirðing aog The New Iceland Herritage Museum í Gimli.
Samningurinn er 1 pappírsörk í A4 stærð. Hann kveður á um samstarf milli Byggðasafns Skagfirðinga, Vesturfarasetursins og Icelandic Assosiation of Utah Inc. Ástand skjalsins er gott.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og fyrirtækisins Guðmundar Jónassonar travel. 2 pappírsarkir í A4 stærð. Varðar útgáfu bæklings. Ástand skjalsins er gott.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og Húsafriðunarnefndar. 22 pappírsarkir í A4 stærð. Varðar Tyrfingsstaðaverkefnið og ferniseringu á timburgólfi í Áshúsi. Ástand skjalsins er gott.