Bæklingur í stærðinni 19 x 11, 6 cm. Skólaminni. Sungið á Blönduósi 12. maí 1902 á 25 ára hátíð kvennaskólans. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Fjórbrotinn bæklingur. Skjalið er nokkuð skemmt af óhreindingum og sliti.
Frá afmælishátíð Tindastóls 29. október 1982. Við háborðið sitja t.v. taldir ofan frá Erling Örn Pétursson, Páll Ragnarsson, Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ og Ingibjörg Kristjánsdóttir. Til hægri við háborðið sitja heiðursfélagar, sem taldir eru ofan frá: MInna Bang, Eyþór Stefánsson, Sigríður Stefánsdóttir, Óskar Stefánsson, Friðvin Þorsteinsson, Guttormur Óskarsson og kona hans Ingveldur Rögnvaldsdóttir, og loks Dýrleif Árnadóttir.