Fundur í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki með frambjóðendum fyrir alþingiskostningarnar 1987. Nemendafélag skólans stóð fyrir fundinum. Á myndinni eru f.v. Ragnar Arnalds fyrir Alþýðubandalagið, Árni Steinar Jóhannsson fyrir Þjóðarflokkinn og Páll Pétursson fyrir Framsóknarflokkinn.
Við útskrift í FNV vorið 1996 var listaverkið NAM eftir Finnu Birnu Steinsson afhjúpað. Frá vinstri, Finna Birna Steinsson listamaður, Ragnar Arnalds (1938-) alþingismaður og Jón Friðberg Hjartarsson (1947-) skólameistari.
Ragnar Arnalds veitir viðtöku tveimur málverkum eftir Margréti Björnsdóttur (Sossu) í fimmtugs afmæli sínu, sem haldið var í Vertshúsinu á Hvammstanga í september 1988.
Ólafur Ragnar Grímsson (í ræðustóli) með almennan fund á Villa Nova haustið 1987, þá nýkjörinn formaður Alþýðubandalagsins. Honum á hægri hönd Karl Bjarnason og Ragnar Arnalds.
Óþekktur fundur í matsal Heimavistar Fjölbrautaskólans. F.v. Ragnar Arnalds ráðherra, Þorkell Þorsteinsson, Jón Hjartarson skólameistari, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Sveinn Allan Mortens og Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Norðvesturkjördæmi. Óvíst um ár. F.v. Eyjólfur R. Eyjólfsson (í ræðustóli), Sigurður Sigfússon, óþekkt og Ragnar Arnalds.
Nemendur í leiðsögunámi árið 1996 frá vinstri Helena Svanlaug, Karl Sigurgeirsson, Valgeir Steinn Kárason (1951-), Ingibjörg Jóhannesdóttir, Þorkell Vilhelm Þorsteinsson (1956-), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-),Matthildur Ingólfsdóttir, Ágúst Sigurðsson, Debbie Robinson, óþekkt (á bak við), Guðbjörg Guðmundsdóttir og Helgi Hannesson (1952-). Myndin tekin við úrsýnisskífuna á Arnarstapa.
Leikhópur Ungmennafélags Tindastóls sem setti upp revíuna Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson vorið 1997. Frá vinstri Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942 á bakvið-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-), Auðunn Blöndal (1980-), Indriði Þór Einarsson (1979-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-). Mynd var tekin í barnaskólanum þar sem sungin voru lög úr revíunni. Rás 1 var á staðnum og tók upp. Leikritið var sett upp árið 1997 af Umf. Tindastóli í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Höfundurinn Jón Ormar Ormsson er niðri í horninu t.h.
Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðákróks í Sæluviku í Bifröst vorið 1997. Frá verðlaunaafhendingunni. Frá vinstri: Hilmir Jóhannesson, Ásdís Guðmundsdóttir, Snorri Evertsson, Gísli Magnason, Einar K. Pálsson höfundur lags númer tvö, Guðrún Gunnarsdóttir, Ari Jónsson og séra Sigurður Ægisson á Grenjaðastað, höfundur sigurlags og texta, en lag hans hét "Þú og ég". Guðrún og Ari sungu lagið.
Frá vinstri Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-), Auðunn Blöndal (1980-), Indriði Þór Einarsson (1979-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-). Leikhópur úr revíunni Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson sem Umf. Tindastóll setti upp árið 1997 í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Myndin er tekin í barnaskólnum þar sem Rás 1 tók upp söngvana úr revíunni.
Frá vinstri Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-), Arna Björnsdóttir (1975-), Auðunn Blöndal (1980-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-) og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-). Revían Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson, sett upp af Umf. Tindastóli vorið 1997 í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Leikstjóri Edda V. Guðmundsdóttir.
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitastjórnar í sameinaðu sveitarfélagi í Skagafirði haldinn í Gilsstofu í júní 1998. F.v. Sigrún Alda Sighvatsdóttir, Árni Egilsson, Ásdís Guðmundsdóttir, Páll Kolbeinsson, Snorri Björn Sigurðsson sveitarstjóri, Elsa Jónsdóttir ritari, Gísli Gunnarsson forseti sveitastjórnar, Herdís Sæmundaróttir, Elílborg Hilmarsdóttir, Stefán Guðmundsson, Sigurður Friðriksson, Ingibjörg Hafstað og Snorri Styrkársson.
Þrír Skiptinemar frá Bandaríkjunum á vegum AFS skiptinemasamtakanna, sem dvalið höfðu í Skagafirði ásamt AFS deildinni á Sauðárkróki í ágúst 1987. F.v. Þorkell Þorsteinsson kennari, þá skiptinemarnir þrír, Rannveig Jónasdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir með Valdísi Dröfn.
Afmælishátíð á Sauðárkróki sumarið 1997, en þá voru 140 ár frá því bærinn varð verslunarstaður og 90 ár frá því hann varð sérstakt sveitarfélag og 50 ár frá því hann varð kaupstaður. Langfjölsóttasta samkoma afmælisársins var Geirmundarkvöld í íþróttahúsinu, þar sem yfir 1000 manns mættu, þar á meðal forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir. Sveiflukóngurinn og hans fólk fór á kostum. Söngkonan er Ásdís Guðmundsdóttir (1963-) og Geirmundur Valtýsson (1944-). lengst t.h. aðrir óþekktir.
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.
Forsetahjónin heimsækja Vesturfarasetrið á Hofsósi í ágúst 1996 en þau höfðu verið á 200 ára minningarhátíð um Bólu-Hjálmar. F.v. Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú, Guðrún H Þorvaldsdóttir, Vatni , Valgeir S Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.
Frá afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Elsa Jónsdóttir bæjarritari í ræðustóli. Á bak við frá vinstri, Hilmir Jóhannesson, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Stefán Guðmundsson alþingismaður og óþekktur.
Heiðursgestir á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum sumarið 2002 ásamt Eysteini Leifssyni (annar f.h.).F.v. Dorrit Moussaieff, Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti, Anna Bretaprinsessa, Eysteinn, og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð á Sauðárkróki í júií 1997. Á myndini eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Frá setningu Landsmóts hestamanna á Vindheimamelum árið 2002. Fremst t.h. Anna Sif Ingimarsdóttir. Aftan við hana heiðursgestir mótsins. F.v. Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti Íslands, Anna Bretaprinsessa og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir koma á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á Alexandersflugvelli að heilsa framáfólki bæjarins.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á Faxatorgi á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður t.v. og Elsa Jónsdóttir bæjarritari t.h.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður lengst t.v. Aðrir óþekkir.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Húsið Sandur á Hofsósi sem nú hýsir Vesturfarasetrið. Maðurinn til hægri vinstra megin á myndinni er Ólafur Ragnar Grímsson forseti hinn óþekktur, svo stendur Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður setursins framan við húsið og kona hans Guðrún H. Þorvaldsdóttir er lengra t.h. Nær sér svo á bak Magnúsar H. Sigurjónssonar og konu hans Kristbjörgu Guðbrandsdóttur.
Vesturfarasetrið á Hofsósi í ágúst 1996, en þá heimsóttu forsetahjónin setrið. Ólafur Ragnar forseti er framan við húsið t.v. og Valgeir Þorvaldsson framan við húsið t.h.
Vesturfarasetrið Hofsósi. F.v. Sigurrós Þórleif Stefánsdóttir, Guðrún H. Þorvaldsdóttir, Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Hópur manna sem vann við áburðardreyfingu með flugvélinni Páli Sveinssyni á Auðkúlu- og Eyvindarstaðaheiði sumarið 1991. F.v. Þórður Eyjólfsson frá Stóragerði, Þórir Brynjólfsson flugmaður, Tómas Dagur Helgason flugmaður, Björn Guðmundsson flugstjóri hjá Landgræðslunni, Pétur Steinþórsson flugmaður og Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri.
Tilg. Fótboltastrákar úr Umf. Neista á Hofsósi sem fóru í æfinga- og keppnisferð til Færeyja 1990 og eða1991 en þeir fóru bæði árin til Færeyja. Efri röð f.v.: Páll Brynjarsson, Oddur Jónsson, Hjalti Þórðarson, Guðmundur Jónsson, Haukur Þórðarson, óþekktur, Þórhallur Ásmundsson og Ólafur Gunnar Halldórsson. Neðri röð f.v.: Halldór, Kristján Jónsson, Jóhann Sigmarsson, Magnús Jóhannesson, óþekktur, Stefán Steinþórsson og Sigmundur Jóhannesson.
Áheitaganga Umf. Neista á Hofsósi 17. júní 1990. Þá var gengið með Harald Þór Jóhannesson í Enni í uppbúnu rúmi 22 km leið, þ.e. heimanað frá sér til Hofsóss. Á myndinni er Björn Níelsson sveitarstjóri á Hofsósi (t.h.) að þakka Haraldi fyrir.
Tilraunavinnsla ígulkerjahrogna hjá hlutafélagonu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Annar frá hægri er Svanur Fannberg Jóhannsson (1937-2001). Aðrir óþekktir.
Tilraunavinnsla ígulkerjahrogna hófst hjá hlutafélaginu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Lengst til hægri er Svanur Fannberg Jóhannsson (1937-2001), Aðrir óþekktir.
Eldri borgarar taka í spil í Safnaðarheimilinu á Króknum. Við borðið fjærst er Sveinn Sölvason og við miðborðið eru fjær Viggó Sigurjónsson og Sigríður Sigtryggsdóttir frá Skefilstöðum, þá Eiríkur Björnsson frá Gili og Guðvin Jónsson Skr. Við borðið næst t.h eru f.v. Bergur Magnússon frá Unastöðum, Guðrún B. Sigurðardóttir og sennilega Hólmfríður Sveinsdóttir. Aðrir óþekktir.
Kirkjukór Sauðárkróks, sennilega á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Fremst eru Guðrún Eyþórsdóttir t.v. við orgelið þá Guðmann Tóbíasson og t.h. Ólafur Sveinsson læknir og sr. Hjálmar Jónsson.
Kirkjukór Sauðárkróks syngur í Sauðárkrókskirkju á 90 ára afmæli kirkjunnar í nóvember 1982. Í fremstu röð eru frá hægri. Mínerva Björnsdóttir, Sólborg Björnsdóttir, Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Þuríður Pétursdóttir og Kristín Jóhannsdóttir. Karlarnir í öftustu röð f.h. Þorbergur Jósefsson, Héðinn Ásgrímsson, Gunnar Haraldsson, Páll Sigurðsson (með gleraugu) og Bragi Haraldsson. Stjórnandi kórsins er Jón Björnsson.
Línubeitning á Hofsósi í nóvember 1990. Frá vinstri Valgarð Valgarðsson, Sveinn Einarsson, Jón Jóhann Jónsson, Jón Helgi Pálsson og Jónas Jónasson í Árveri lengst t.h. Svo sér í kollinn á Braga Vilhjálmssyni neðst á miðri mynd.
Útskrift í Hólaskóla haustið 1999 en þá brautskráðust 27 búfræðingar. Skúli Skúlason nýráðinn skólameistari lengst t.v. og Jón Bjarnson fráfarandi skólastjóri lengst t.h.
Rauðakrossdeild Skagafjarðar fær nýjan sjúkrabíl í nóvember 1996. Frá vinstri Karl Lúðvíksson (1951-), Ingimar Jóhannsson (1949-), Rannveig Þorvaldsdóttir (1921-2002) Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000 á bak við), Gestur Þorsteinsson (1945-), Óskar Stefán Óskarsson (1961-2007) og sr. Gísli Gunnarsson (1957-), formaður Skagafjarðardeildar RKÍ.
Íslensk erfðagreining og Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki stóðu fyrir fundi á Kaffi Krók haustið 1998 um miðlægan gagnagrunn. T.h. talar Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Fyrir miðju er Friðrik J. Friðriksson læknir.
Fundur í Hótel Varmahlíð, hugsanlega um virkjunarmál. Fremstir frá vinstri Magnús Svavarsson, Andrés H. Helgason í Tungu, Birgir Þórðarson á Ríp og Ólafur Þórarinsson í Flugumýrarhvammi.
Við setningu Sæluviku í Safnahúsinu á Sauðárkróki vorið 1998 var opnuð sýning á trélist. Næst eru f.v. Jón Gissurarson Víðamýraseli, Hrólfur Jóhannesson, Sigríður Ragnarsdóttir og Birna Guðjónsdóttir.
Forráðamenn Máka staddir í fiskeldisstöð Miklalax í Fljótum eftir kaup þeirra á stöðinni haustið 1998. Guðmundur Örn Ingólfsson framkvæmdastjóri Máka lengst t.v.