Claessen fjölskyldan við kaffidrykkju úti við, líklega á Sauðárkróki. Neðri röð frá vinstri: María , Valgarð, Anna (yngri), Anna, Ingibjörg, óþekkt kona, Arent. Efri röð frá vinstri: Óþekktur maður, óþekktur maður, Kristján Blöndal, Eggert (?).
Bréf Wilhelm Schweizer til Bruno Schweizer 07.06.1949. Efnið fjallar að mestu um möguleika á að flytja til Íslands þýskt vinnuafl. Aftast er handskrifuð klausa til Beggu eða Baggu og undir hana skrifar "Anny".
Í Syðribúð K.S. frá vinstri: Viðskiptavinurinn er Sigríður Jónasdóttir Syðri-Brekkum. Innan við borðið eru Marta Sigtryggsdóttir og Tómas Hallgrímsson. Safn Kr. C. Magnússonar.
Myndin er tekin í stofunni hjá Valgarði Björnssyni og Jakobínu Valdimarsdóttur á Sauðárkróki- er María Valgarðsdóttir- dóttir þeirra varð 10 ára. Frá vinstri: Ragnheiður Guttormsdóttir- Hanna Björg Halldórsdóttir- Anna Kristín Gunnarsdóttir- Sverrir Valgarðsson- María Valgarðsdóttir- Halla Rögnvaldsdóttir- Anna Birna Ólafsdóttir og Herdís Stefánsdóttir. Safn Kr. C. Magnússonar.
Ljósmyndin er svarthvít í stærðinni 6x9 sm. Myndin er frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á nýársnóttinni í Sæluviku 1942. Á henni er líklega Sigurður P. Jónsson í hlutverki Húnboga stallara.
Kaupsamningur á milli Nikódemusar Jónssonar og Kristjáns Gíslasonar kaupmanns. Kristján afsalar sér til handa Nikódemusi húseign sína, fjós og hlöður er standa sunnanvert við lóð Nikódemusar uppi undir brekku. Bréfið er dagsett 30. október 1929, undirritað og stimplað af Sýslumanninum í Skagafjarðarsýslu.
Mynd frá vöru- og þjónustusýningunni á Sauðárkróki sumarið 1997. Það var nóg að gera í básnum hjá afurðasölu KS við að grilla og bjóða upp á kjötmeti og ost. Páll Friðriksson (1967-) t.h. og Hrönn Gunnarsdóttir (1958-) grillmeistarar. Til vinstri óþekktur.
Loðdýrabændur skoða loðdýrabúið hjá Reyni Barðdal á Gránumóum síðsumars 1996. Reynir Barðdal (1949-) annar frá vinstri að útskýra eitthvað fyrri gestunum. Til vinstri á myndinni er Arvid Kro framkvæmdastjóri Sambands Loðdýrabænda. Lengst til hægri er Kristján Jónsson (1959-) Óslandi. Aðrir óþekktir.
"Þó að flestir séu sjálfsagt orðnir hundleiðir á snjónum, framkallar nýfallin mjöllin oft skemmtilegar myndir," skrifar Þórhallur Ásmundsson í mars 1990.
Frá árshátíð Stangveiðifélag Sauðárkróks í janúar 1987. Veiðikórinn tekur lagið. F.v. Ólafur Helgi Jóhannsson (1950-), Árni Ragnarsson( 1949-), Hörður Inigmarsson (1943-), Sigurður Björnsson (1940-), Steinn Þorkelsson Steinsson (1931-2010), Jóhann Friðriksson (1953-), Þorbjörn Árnason (1948-2003), Ólafur Helgi Antonsson (1947-), Brynjar Pálsson (1936-) og Geirmundur Valtýsson (1944-). leikur undir.
Sigursveit Steinars Skarphéðinssonar í Bændaglímunni á lokamóti Golfklúbbs Sauðárkróks í ágúst 1987 F.v. Friðrik Jens Friðriksson (1923-2011), Sverrir Valgarðsson (1954), Hreinn Jónsson (1939-2009), Steinar Skarphéðinsson, Magnús H. Rögnvaldsson (1952-), Friðrik Örn Haraldsson (1973-), Hjörtur Geirmundsson (1967-) og Guðmundur Sverrisson (1973-).
Mynd tekin á stofnfundi Soroptistafélags Skagafjarðar í maí 1989. Frá vinstri: Steinunn Einarsdóttir, þáverandi forseti Landssambands Soroptimista, Ingunn Ásdís Sigurðardóttir, stofnformaður Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar, Lalla Azzeroli, fulltrúi Evrópusambands Soroptimista - hún færði klúbbnum stofnskrána, Guðrún Sigurðardóttir, þáverandi formaður útbreiðslunefndar SIÍ og aftan við hana er Halldóra Eggertsdóttir heiðursfélagi SIÍ, einnig í útbreiðslunefnd. Hún var þjóðþekkt fyrir margvísleg félags- og ritstörf.
Heimsókn fólks frá Esbo, vinabæ Sauðárkróks í Finnlandi sumarið 1987. Annar f.v í öftustu röð er Snorri Björn Sigurðsson (1950-) bæjarstjóri. Sveinn Margeir Friðriksson (1938-), annar f.h. og Matthías Viktorsson (1948-), lengst t.h.
Unnið við uppslátt að grunni íbúðarhúss við Brekkutúni á Sauðárkróki vorið 1993, en þá hafði lifnað verulega yfir byggingaframkvæmdum á Króknum eftir litlar byggingaframkvæmdir undanfarin ár.
Biskup Íslands í heimsókn á Sauðárkróki, Fiskiðjan heimsótt. F.v. Signý Bjarnadóttir (1949-), Ebba Guðrún Brynhildur Sigurðardóttir (1935-), Sigríður Ragnarsdóttir (1958-), Hjálmar Jónsson (1951-), Ólafur Skúlason (1929-2009), Baldvina Þorvaldsdóttir (1931-2007), Sigríður Jóhannsdóttir (1945-2001) og Magnús Erlingsson.
Myndin tekin í vinnslusal Fiskiðjunnar á Sauðárkróki. Jónas Snæbjörnsson (1951-) forseti bæjarstjórnar t.v. og Snorri Björn Sigurðsson (1951-) bæjarstjóri.
Frá opnun sýsluskrifstofunnar á Sauðárkróki í nýju húsnæði að Suðurgötu 1 í janúar 1991. Frá vinstri: Sveinsína Guðrún Steindórsdóttir (1950-), Ásta Pálína Ragnarsdóttir (1953-), Magnús Sverrisson (1954-), Fanney María Maríasdóttir (1955-), Hjördís Stefánsdóttir (1962-), Heimir Guðmundsson (1958-), Sigríður Friðjónsdóttir og Kristján Þór Hansen (1950-).
Brúarvinnuflokur frá Hvammstanga við byggingu brúar yfir Vesturós Héraðsvatna sumarið 1994. F.v Marteinn Reimarsson, Helgi Kristjánsson, Hannes Ársælsson, Örlygur Eggertsson, Gunnar Þorvaldsson, Jakob Jóhannesson og Sigurður Hallur Sigurðsson.
Björn Sverrisson (1937-) undir stýri á Willis 1946 sem hann gerði upp, í Aðalgötunni á Króknum. Tilgáta að þessi mynd sé tekin á afmælisári Sauðárkróks 1997.
Félagar úr Skagfirðingasveit á Alexandersflugvelli við komuna frá Ísafirði en þeir fóru vestur til að aðstoða Súðvíkinga eftir snjóflóðin í janúar 1995. Fremst til hægri er Haraldur Ingólfsson (1967-) með leitarhund.
Stórsveit úr Tónlistarskólanum á Sauðárkróki að spila í Aðalgötunni á Króknum miðvikudaginn í dimbilviku 1992. Engu var líkara en vorið væri komið á Krókinn. Götusóparar voru í óða önn í bænum og lúðrahljómar ómuðu í gamla bænum síðdegis. Þar var á ferðinni stórsveit Tónlistarskóla Sauðárkrórks sem stofnuð var með 20 hljóðfæraleikurum þann vetur. Tónlistarfólkið hélt til vinabæjar Sauðárkróks, Köge á tónleikamót skömmu eftir að myndin var tekin. Með leik sínum í Aðalgötunni var sveitin að sýna þakklætisvott þeim fyrirtækjum sem studdu hana til fararinnar.
Á þrettándaskemmtun Karlakórsins Heimis í Miðgarði 1998 færði Páll Dagbjartsson (t.v.) heiðursgestum skemmtunarinnar, þeim Davíð Gíslasyni og Gladys Gíslason, þakklætisvott fyrir góða aðstoð í ferð kórsins til Kanada sumarið áður.
Skrifstofa Sjóvá sem opnaði nýja skrifstofu að Skagfirðingabraut 9 Skr. síðla vetrar 1988. Umboðsmaður Sjóvá er Anna Pála Guðmundsdóttir við borðið t.h. og starfsmaður er Ásdís Sigríður Hermannsdóttir (1949-). við borðið t.v. Viðskiptavinur er óþekktur.
Lionsklúbbarnir á Sauðárkróki stóðu fyrir samkeppni meðal grunnskólanema um gerð friðarveggspjalds vorið 1990. F.v. Páll Pálsson (1946-), formaður Lionsklúbbs Sauðárkróks ásamt verðlaunahöfum þeim, Björgvin Benediktssyni (1977-), Ingibjörgu Stefánsdóttur (1976-) og Helenu Magnúsdóttur (1976-).
Styrktar- og líknarsjóður lögreglumanna styrkir Ólöfu Þórhallsdóttur á Narfastöðum í Viðvíkurhreppi í desember 1995, en Ólöf hafði misst eiginmann sinn og son í bílslysi fyrr á árinu. Afhendingin fór fram í lögreglustöðinni á Sauðárkróki. F.v. Geir Jón Þórisson, Ólöf Þórhallsdóttir (1952-) og Gissur Guðmundsson.
Skrifað undir samning um byggingu endurhæfingarstöðvar við Sjúkrahúsið á Sauðárkróki í maí 1998. Sitjandi f.v. Geir H. Haarde fjármálaráðherrra, Ingibjörg Pálmadóttir (1949-) heilbrigðisráðherra og Magnús Sigurjónsson (1929-) framkvæmdastjóri Héraðsnefndar. Standandi Björn Sigurbjörnsson t.v. og Birgir Gunnarsson.
Unnið að því að setja saman rör sem undirgöng undir Sæmundarhlíð frá Bóknámshúsi að heimavist Fjölbrautaskólans árið 1996, en björgunarsveitin Skagfirðingasveit sá um samsetningu röranna.
Herdís Á. Sæmundardóttir (1954-) formaður skólanefndar tekur fyrstu skólfustungu að byggingu B-álmu og Kubbsins við Árskóla í ágúst 1999. Aðstoðarmaður á gröfu óþekktur.