Ljósrit af bréfi frá Rúnari Kristjánssyni til Harðar Ingimarssonar, inniheldur mynd Stefáni Kemp í forgrunni þar sem horft er í norðaustur til Illugastaða. Orð út frá meðfylgjandi mynd eru svo aftan við þar sem ort hefur verið vísur um myndina.
Fjölritað hefti í A5 broti, alls 12 síður að kápu meðtalinni. Inniheldur brag um íbúa og mannlíf á Sauðárkróki. Tengist ef til vill revíum sem farið var að sýna á Króknum árið 1943 (sjá https://timarit.is/page/6567777#page/n23/mode/2up) Ástand skjalsins er gott.
Ljóðið er handskrifað á pappírsörk í stærðinn 11,8x 18 cm. Það er ort í tilefni af 70 ára afmæli Odds Einarssonar (1870-1953) sem bjó í Þverárkoti á Kjalarnesi. Ástand skjalsins er gott.
Gögn um Jón Arnbjörnsson vinnumann á Svaðastöðum í Viðvíkursveit, Skagafirði. Ljósmynd, nafnskírteini og vísa ort um Jón. Með fylgir greinargerð um Jón eftir Pálma Rögnvaldsson.
Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaðuð ljóð, m.a. erfiljóð. Mörg þeirra eru eftir Guðmund Stefánsson frá Minni-Brekku. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaðuð ljóð eftir ýmsa höfunda. Aftast í bókinni er efnisyfirlit í stafrófsröð. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja tvö minnisblöð
"Til Kristjáns tíunda". Kvæði eftir Ásmund Jónsson frá Skúfsstöðum í tilefni af afmæli Kristjáns konungs. Úrklippa úr Morgunblaðinu frá 27. apríl 1947.
Þrjú hefti af Bændavísum eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá frá árinu 1955. Eitt hefti um bændur í Akrahrepps í Blönduhlíð. Eitt hefti um bændur í Laxárdál og Skaga. Eitt hefti um um bændur í Lýtingsstaðahreppi og víðar.
Útgefið rit í stærðinni 22,5 x 14,2 cm. Hólaljóð. Biskupsvígsla á Hólum 10. júlí 1910, er vígður var Geir biskup Sæmundsson. Skáldið Matthías Jockumsson flutti ljóðið í Hóladómkirkju á vígsludaginn. 8 bls. Félagsprentsmiðjan 1910.
Útgefið rit í stærðinni22 x 14 cm. Einblöðungur. Kvæði sungin á þjóðminningardag Húnvetninga 9. júlí 1898. Prentsmiðja dagskrár. Útgáfuárs ekki getið. Ritið er óhreint og slitið.
Bæklingur í stærðinni 19 x 11, 6 cm. Skólaminni. Sungið á Blönduósi 12. maí 1902 á 25 ára hátíð kvennaskólans. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Fjórbrotinn bæklingur. Skjalið er nokkuð skemmt af óhreindingum og sliti.
Hefti í stærðinni 25,5 x 13, 6 cm. Stephan G. Stephansson. Heftið er með kápu sem skreytt er gylltu skrauti og bundin á með satínborða. Útgáfuár og útgefanda ekki getið, en ef til vill gefið út í tilefni af afmæli Stephans eða ártíð. Inniheldur ljóð eftir skáldið.
Í bókina er skráð ein frásögn úr skemmtiferð sem konur úr Kvenfélaginu Ósk fóru 1984 um framsveitir Skagafjarðar, frásögnina skrifaði Sigurbjörg Halldórsdóttir, Brekkukoti í Óslandshlíð. Á öftustu blaðsíðunni og á spjaldinu er skrifað ljóðið "Tilvera okkar er undarlegt ferðalag..." einnig er kvæði í tveimur erindum og byrjar svona; " Vertu alltaf hress í huga, hvað sem kann að mæta þér.." Fyrir neðan neðsta erindið stendur skrifað "Erla". Í bókinni er einnig ljósrit af mynd með tveimur konum,