Kaupgjörningur. Sigurður Gíslason (síðast á Þóreyjarnúpi í Línakradal) selur bróður sínum, Konráði Gíslasyni á Völlum jörðina Þverá í Hallárdal. Skjalið er dagsett 1. ágúst 1781. Með undirritun Sigurðar og Konráðs ásamt innsiglum þeirra.
Landamerkjaskrá. Landamerki milli Hrafnagils og Þverár í Hallárdal. Dagsett 14. nóvember 1921. Undir skjalið rita Steingrímur Guðmundsson, eigandi Þverár og Guðmundur Guðmundsson eigandi Hrafnagils.
Landamerkjaskrá. Landamerki milli Illugastaða og Þverár í Hallárdal. Dagsett 20. júní 1889. Undir skjalið rita Árni Jónsson, eigandi Þverár og Hjörtur Hjálmarsson meðeigandi Illugastaða.
Landamerkjaskrá. Landamerki milli Þverár í Hallárdal. Dagsett 20. júní 1889. Undir skjalið er ritað nafn Árna Jónssonar, eigandi Þverár. Mögulega er hér um uppskrift að ræða.
Landamerkjaskrá. Landamerki milli Hrafnagils í Laxárdal ytri og Þverár í Hallárdal. Dagsett 29. maí 1890. Undir skjalið rita Árni Jónsson, eigandi Þverár og Hjörður Hjálmarsson umráðamaður Hrafnargils.
Samkomulag um landmerki milli Þverár og Illugastaða. Dagsett 25.01.1887. Undir skjalið rita Árni Jónsson eigandi Þverár og Gísli Gíslason frá Illugastöðum.
Samkomulag um landmerki milli Þverár og Bergsstaða. Dagsett 17.06.1889. Nöfn Jónínu Þereyju Jónsdóttur (eiganda Bergstaða) og Árna Jónssonar (eiganda Þverár) eru rituð undir.
Samkomulag um landmerki milli Þverár og Bergsstaða. Dagsett 15.06.1889. Nöfn Frímanns Guðmundssonar (fyrir hönd eiganda Bergstaða) og Árni Jónsson (eigandi Þverár) eru rituð undir.
Landamerkjaskrá. Landamerki Hrafnagils og Þverár í Hallárdal. Dagsett 14. nóvember 1921. Undir skjalið rita Steingrímur Guðmundsson, eigandi Þverár og Magnús Laxdal, eigandi Hrafnagils ásmt Ásgeiri Halldórssyni eiganda Foss.
Bréfið ritar Björn Auðunsson Blöndal í Hvammi í Vatnsdal, þann 4. júlí 1842. Bréfið virðist hafa verið sent til Bjarna Þorlákssonar, Þverá í Hallárdal.
Bréf frá Birni Gunnlaugssyni, kennara í Bessastaðaskóla. Bréfið varðar Þverá, um mat á jörðunni og kaupverð. Bréfið er ritað 16. nóvember 1841 að Sviðholti á Álftanesi. Uppskrift Björns Blöndal í Hvammi.
Fjallskilareglugjörð Skagafjarðarsýslu 1935, Markaskrá Eyfjarðarsýslu og Akureyrarkaupstaðar, Leiðréttingar og viðbætir við Markaskrá Eyfjarðarsýslu og Akureyrarkaupstaðar 1944.