Gunnlagur Sölvason og Guðríður kona hans. Börnin eru Björn, Stefán og Lilja. Myndin er tekin um 1901 eða 1902. Myndin er gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur á Sauðárkróki.
Passamynd. Stúlkan á myndinni er Karen, 10 ára gömul. Hún er afkomandi Reykjavallahjóna Guðríðar og Guðmundar Skúlasonar. Dórri Matthíasar Þorfinnssonar.
Konan í upphlutnum heitir Helga Jónsdóttir og sú í kjólnum heitir Hildur. Aftan á myndina er skrifað: "Reykjavík 21/3 1912. Kæra Guðbjörg mín. Jeg hef að öllum líkindum ekki breyst svo mikið að þú þekkir mig ekki, en samt þori jeg ekki annað en segja þjér að jeg er sú sem er í upphlutnum, en Hildur sem er á kjólnum. Skilaður kærri kveðju til alls heimilisfólksins, svo er jeg. Þín einlæg frænka Helga Jónsdóttir."
Óþekkt kona fyrir framan hús. Myndin er tekin í Vesturheimi. Aftan á myndina er ritað: "Þetta eru tröppurnar á húsinu sem ég bý í. Stóri glugginn var á setustofunni minni. Eins og ég sagði í bréfinu, þá hefi ég flutt upp á sjötta gólf., svo þetta er ekki glugginn minn lengur."
Aftan á myndina er skrifað: "Þetta er maður sem ég vinn mðe og konan hans. Ég var þar fyrir middagsmat einn sunnudag í haust eða seint í sumar. Myndin er merkt með sömu rithönd og myndir nr 98 og 101.
Herbert Marteinson og John Marrteinson. Aftan á myndina er ritaður eftirarandi texti: "Foreldrar Helgi Marteinssonn og Ingibjörg Helgadóttir. Herbert á heima í Vancouver og er háttsettur í lögreglunni.
Á öðrum stendur: Foreldrar drengjanna hétu Birgitte Brandson og Helgi Marteinson og Helgi er skyldur Andrési. Stóri Björn afi þeirra?"
Fólkið á myndinni er óþekkt en hún er tekin á járnbrautarstöð vestan hafs. Aftan a myndina er skrifað: "Joseph, bróðir minn og ég. Við vorum að bíða eftir járnbrautarlest (það er rétta orðið er það ekki?)." Rithöndin er sú sama og á myndum nr 98, 101 og 102.
Vesturfarasetrið Hofsósi. F.v. Sigurrós Þórleif Stefánsdóttir, Guðrún H. Þorvaldsdóttir, Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur staðfesting Sigríðar á að hún hafi sent afrit af bréfi dags. 16.12.1895 til Ola K. Olson. Einnig liggur með ljósrit af umræddu bréfi frá 1895. Ástand skjalsins.
Tölvupóstsamskipti Byggðasafnsins og Byggðasafn Árnesinga. Varðar samstarf vegna sýningar um Vesturfara. 1 pappírsörk í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og Einars og Rósalindu. Varðar myndir heimsókn eirra frá Canada til Íslands og fréttir af þeim (jólabréf). 1 pappírsörk í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Benedikt Jónsson- Benediktssonar- Hólum í Hjaltadal (situr) og sonur hans Björn Benediktsson (stendur). Benedikt Jónsson var afi Guðlaugar Arngrímsdóttur Litlu-Gröf.
Ættingjar Gullu af Vestur íslenskum ættum. Aftan á mynd stendur: Frá vinstri til hægri: Peria, Judy's friend (Italian), George, Gloria, Judy, Laufey, Elin, Viola.
Mynd tekin fyrir utan skóla í Bandaríkjunum sem heitir Thora B. Gardiner school og er í Oregon. Skólinn er nefndur í höfuðið á Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardiner) sem var systir Sigríðar Benediktsdóttur á Litlu-Gröf.
Mynd líklega tekin í Kanada. Aftan á mynd er skrifað: Þetta er mynd af fjallkonunni s.l. sumar, tekið þegar hún var að ganga upp á pallinn. Ég hjálpaði henni að fara í búninginn. Og tvær hirðmeyjar.
2 bréf Sesselju Halldórsdóttur til dóttur (líklega til Þorbjargar Árnadóttur). Bréf bæði merkt Akra en það er í Norður Dakóta í Bandaríkjunum. Fyrra bréf dagsett 30. desember 1903 Seinna bréf dagsett 24. janúar 1906