Sýnir 2802 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Kristján C. Magnússon: Ljósmyndasafn With digital objects
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

KCM160

Bíl ekið inn í garð Suðurgötu 6 eftir ball í Bifröst. Myndin tekin af tröppum Suðurgötu 10. (Ca. 1960-1965).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM16

Sauðárgil. Fólkið á klettinum t.h. gæti verið f.v. Fríður Ólafsdóttir, Páll Biering og Sigrún M. Jónsdóttir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM159

Talið frá vinstri, standandi: .- Pétur Jónsson - Ólafía Sigurðardóttir - Guðmundur Sveinsson - Sigrún Jónsdóttir - Sigurbjörg Guðmundsdóttir - Kristján C. Magnússon. Sitjandi - Magnús Sigurðsson - Margrét Pétursdóttir og Björn Guðmundsson - Dýrleif Árnadóttir (bak við Björn) og Þorvaldur Þorvaldsson.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM157

Á síldarplani á Króknum (ca. 1940-1950). Lengst t.v. Sigurlína Stefánsdóttir (kona Sigga Þorkels) og lengst t.h. Ólafía Sigurðardóttir (kona Péturs Jónssonar verkstjóra). Aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM154

T.v. Elenóra Jónsdóttir, Birkihlíð og t.h. Emilía Jónsdóttir frá Eyvindarstöðum í Blöndudal.
(Sams konar mynd og Hcab 2041).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM149

Eyþór Stefánsson (1901-1999) ásamt nemendum Tónlistaskólans á Sauðárkróks. Skólinn tók til starfa árið 1965 og var Eyþór fyrsti skólastjóri skólans. Eva Snæjbarnardóttir er t. h. en hún varð síðar skólastjóri Tónlistaskólans (1974). Myndin er hugsanlega tekin á fyrstu skólaslitum skólans.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM144

Tilgáta: Myndin er tekin á fyrstu tónleikum Tónlistarskólans á Sauðárkróki 1965. Sjá mynd nr 137.
Sveinn Árnason frá Víðimel spilar á orgelið, fjær eru sennilega Jón Steinbjörnsson og Ingibjörg Jónasdóttir.
Í fremri röð er Svava Ögmundsdóttir fjórða f.v. og Helga Valdimarsdóttir fimmta, aðrar óþekktar. Í aftari röð eru f.v. óþekkt, Karlotta Evertsdóttir, Kristín Ögmundsdóttir, Svava Hjaltadóttir, Dagur Jónsson, óþekktur og Stefán Evertsson.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM142

Suðurgata 10 - hús Kristjáns og Lóu. Maðurinn á myndinni er ónafngreindur og einnig barnið. Konan í tröppunum t.h. mun vera móðir Kristjáns Hildur Margrét Eriksen.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM141

Auglýsing í búðarglugga (sennilega á Sæluviku). Alþýðuhúsið að auglýsa skemmtun. Halli og Stína sýna dans, Sigurdór syngur og hljómsveitin Rómó leikur (samanber miðjumyndina). Rómó var fyrsta alvöru hljómsveit Geirmundar (starfaði 1958-1965). Hljómsveitin var tríó og voru meðlimir bræðurnir Geirmundur og Gunnlaugur Valtýssynir og svo Jón Sæmundsson, Fosshóli. (ca. um 1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM140

Mynd tekin vestan við Sundlaug Sauðárkróks, en þar voru Óskar Þorleifsson og Kristjana Júlíusdóttir með hænsnabú. Húsin t.h. eru við Bárustíginn (ca. 1960-1970).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM14

  1. júní 1954. Börn á leið á íþróttavöllinn við Grænuklauf til hátíðarhaldanna. (Sama mynd og KCM 3). Líka tilg. um að þetta sé skrúðganga frá kirkju til sundlaugar þegar sundlaugin var vígð 11. júní 1957. Fánaberi er sennilega Kári Steinsson og Guðjón Ingimundarson t.v. við skrúðgönguna.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM138

Gunnar Flóventsson heldur á ónafngreindu barni í skírnarkjól. Hugsanlega Vigdís dóttir hans, fædd 1963.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM137

Mynd tekin í Bifröst, hugsanlega á fyrstu tónleikum Tónlistarskólans á Sauðárkróki 1965. Guðni Friðriksson spilar á melodiku. Við orgelið eru Stefán Evertsson (nær) og Ingibjörg Jónasdóttir. Stúlkur úr árgangi 1954 sitja fremst. Þriðja f.v. er Svava Ögmundsdóttir og t.h. við hana Helga Valdemarsdóttir. Milli Svövu og Helgu er Karlotta Evertsdóttir. Aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM133

Einhverskonar flugvél (svifflugvél). Ingi Sveinsson situr í vélinni og maðurinn lengst t.h. er Árni Blöndal. Aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM132

Þórey Hansen (1886-1963). Myndin tekin vestan við hús hennar neðst í Kirkjuklaufinni vestan kirkjunnar.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM131

Félagar úr Kirkjukór Sauðárkróks. Myndin er tekin 1960 á svölum Barnaskólans eftir kaffisölu til styrktar orgelsjóði. Frá vinstri í fremri röð: .- Kristín Svavarsdóttir - Jófríður Björnsdóttir - Gunnlaug Stefánsdóttir - Kristín Sölvadóttir og Bára Haraldsdóttir. .- Aftari röð frá vinstri: .- Sólborg Valdimarsdóttir - Sigrún Pétursdóttir - Pétur Helgason - Sigríður Stefánsdóttir - Hallfríður Rútsdóttir - Hólmfríður Jóhannesdóttir og Dóra Magnúsdóttir. .- .- .-

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM130

Pétur Helgason hótelstjóri á Sauðárkróki ræsir keppendur á kappreiðum við Sauðárkrók. Myndin er tekin á Fluguskeiði - sem var skeiðvöllur Sauðkrækinga um hríð.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM13

Unnið að malbikun Skagfirðingabrautar (1962) - Læknisgarðurinn (Suðurgata 1) í forgrunni.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM116

Lindargata 13 - Erlendarhús. Byggt árið 1874. Elsta uppistandandi hús á Sauðárkróki.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM112

Sanddæluskip dælir sandi úr höfninni í landfyllinguna austan Eyrarvegarins á Króknum.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM110

Lindargata 9 - Sauðárkróki. Hús Björns Símonarsonar gullsmiðs - Gullsmiðshús - síðar Prófastshús. Æskuheimli Helga Hálfdanarsonar þýðanda.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM109

Lindargata 9 - Sauðárkróki. Hús Björns Símonarsonar gullsmiðs - Gullsmiðshús - síðar Prófastshús. Æskuheimli Helga Hálfdanarsonar þýðanda.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM106

Lindargata 9 á Sauðárkróki. Hús Björns Símonarsonar gullsmiðs. Gullsmiðshús. Prófastshús. Byggt 1897.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM105

Friðrik A. Jónsson stendur fyrir framan Sauðárkróksbakarí. Á húsinu eru auglýsingaspjöld fyrir Sauðárkróksbíó þar sem verið er að sýna kvikmyndina Heiða.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM104

T.h. Guðmundur Jónsson söngvari (f. 10. maí 1920 í Reykjavík - d. 6. nóvember 2007). T.v. óþekktur. Myndin tekin á Bifröst í Borgarfirði.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM103

Lautarferð. Drengurinn t.v. er Páll Biering og konan í miðið er Sigrún M. Jónsdóttir. Tilgáta að fólkið nær séu foreldrar Páls, þau Hilmar Biering og Helga Pálsdóttir. (Ca. 1960-1965).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM10

Aðalgata 24. Húsið var rifið fyrir 1960. Rafvirkjarnir Páll Óskarsson (t.h.) og Björn Jónsson (t.v.) og svo Willisjeppi þeirra K-63.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

Niðurstöður 2721 to 2802 of 2802