Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri sundlaug á Hólum en hún var vígð vorið 1982. T.v. má þekkja Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og konu hans Ingibjörgu Kolka og svo Kristján Skarphéðinsson. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er næstur á myndinni og Gísli Pálsson frá Hofi er með skófluna.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins annars vegar og Kristínar Jónsdóttur, Söru Regínu Valdimarsdóttur, Sigríðar Ólafar Þóru Sigurðardóttur hins vegar. 4 pappírsarkir í A4 stærð. Varðar Fosslaug og styrkumsóknir. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar kostnað við gufubaðsstofu og fleira í sundlaugarhúsinu í Varmahlíð. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar sundkennslu við Barðslaug. Með liggur viðurkenning á greiðslu til Páls Jónssonar vegna sundkennslu. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. það varðar niðurstöður norrænu sundkeppninngar. Með liggja gögn um keppnina, tvö blöð í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Bókhaldsgögn vegna sundlaugarinnar í Varmahlíð frá árunum 1966-1967. Alls 125 stk ásamt umslagi sem stílað er á Halldór Benediktsson. Ástand gagnanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar byggingu á sundlaug og sundskýli á Gili í Austur-Fljótum. Ástand skjalsins er gott.