Danska konungsskipið við Sprengisand í Reykjavíkurhöfn. Konungur á leið um borð í snekkju sína eftir veislu á Hótel borg. Bryggjan er skreytt í tilefni konungskomunar.
Bréfið er frá Gísla Kristjánssyni, ritstjóra, fyrir hönd Búnaðarfélags Íslands til "Islands Vicekonsulat" í Þýskalandi sem var á þessum tíma Árni Siemsen. Bréfið varðar fyrirspurnir frá Þýskalandi um vinnu fyrir Þjóðverja á Íslandi við landbúnað.
Bréf Árna G. Eydals til SJG. Afar líklegt að hér sé um Sigurð J. Gíslason að ræða. Bréfið varðar yfirlestur og leiðréttingar á handriti Árna G. Eydals meðal annars um tækniframfarar í landbúnaði. Bréfið er ódagsett en efni bréfsins gefur til kynn að það sé ritað í nóvember 1959.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, bréfsefni merkt Snorri Jóhannsson, sími 503. Með liggur kvittun úr Landsbankanum vegna innborgunar á hlaupareikning og umslag.
Bréf Lárusar Stefánssonar Thorarensen sýslumanns Skagfirðinga til hreppstjóranna í Akrahreppi. Efni bréfsins varðar að segja frá innihaldi bréf sem hann hafði fengið frá Bjarna Thorarensen amtmanni. Fjallar bréfið að mestu um bólusótt og viðbrögð við henni.
Tvö bréf frá Þorgilsi Guðmundssyni frá Valdastöðum sem starfaði á þessum tíma á fræðslumálaskrifstofunni í Reykjavík og var einnig gjaldkeri ÍSÍ um tíma.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til móður sinnar. Skrifað frá Reykjavík þann 29.12.1940. Jónas þakkar móður sinni fyrir bréfið og skrifar hann um mæðuveikina sem herjar á féð. Hann leggur til að Steinunn komi suður næsta sumar og fái sér gleraugu. Jónas talar einnig um að nóg sé af atvinnu í Reykjavík tengt bretunum.