Úr Stuðlabergi á Hofsósi á degi iðnaðarins, haustið 1995 en þá voru liðin 30 ár frá stofnun Stuðlabergs hf. Frá vinstri Stefán Óskarsson, Hjalti Gíslason, Vilhjálmur Steingrímsson, Þorsteinn Kristjánsson og Sigurveig Friðriksdóttir.
Systurnar frá Ártúnum syngja á jónsmessuhátíð á Hofsósi 1995. F.v. Kristín Snorradóttir (1963-), Þórunn Snorradóttir (1967-) og Anna Jóna Snorradóttir (1960-).
Nafnarnir, Kristján Stefánsson (1944-), Gilhaga (t.v.) og Kristján Sigurmundsson leiða söng á sumarmóti Þroskahjálpar að Steinstöðum í Skagafirði sumarið 1998.
Karlakórinn Heimir og Sigrún Hjálmtýrsdótttir syngja í Staðarbjargavík á Jónsmessuhátíð á Hofsósi 1995. Varðskipið Óðinn þéttskipað fólki lónar úti fyrir. Stjórnandi kórsins er Stefán R. Gíslason (1954-).
Fjölmenni var samkomið við Staðarbjargarvíkina á jónsmessuhátíð á Hofsósi 1994 til að hlýða á söng Karlakórsins Heimis. Í lokin söng kórinn eitt lag í Básum, þar sem stuðlabergið er hvað fegurst í víkinni og þar er þessi mynd tekin. Frétt um hátíðarhöldin á Hofsósi og söng Heimis á baksíðu Feykis 29. júní 1994.
Áheitaganga Umf. Neista á Hofsósi 17. júní 1990. Þá var gengið með Harald Þór Jóhannesson í Enni í uppbúnu rúmi 22 km leið, þ.e. heimanað frá sér til Hofsóss. Á myndinni er Björn Níelsson sveitarstjóri á Hofsósi (t.h.) að þakka Haraldi fyrir.
Áheitaganga Ungmennafélagsins Neista á Hofsósi vorið 1990 en þeir báru Harald Þór Jóhannsson bónda í Enni í Viðvíkursveit heimanað frá til Hofsós, 22 km leið. Frá vinstri Oddur Gunnar Jónsson (1969-), (Kristján Geir), Jón Einar Kjartansson (1968- á bak við), Loftur Guðmundsson (1952-), Kristján Jónsson (1957-) og Hartmann Páll Magnússon (1944-).
Leikfélag Hofsóss setti upp leikritið, Þið munið hann Jörund, eftir Jónas Árnason siðla vetrar 1987. Leikstjóri Hilmir Jóhannesson. F.v. Stefán Jón Óskarsson (1953-), Árni Eyþór Bjarkason (1960-), Jóhann Friðgeirsson (1949-). Lúðvík Bjarnason (1943-) er í snörunni og liggjandi maður er Ásgeir Jónsson (1966).
Leikfélag Hofsóss setti upp leikritið "Þið munið hann Jörund" eftir Jónas Árnason vorið 1987. Leikstjóri Hilmir Jóhannesson (1936-). F.v. Ásgeir Jónsson, Árni Bjarkason, Lúðvík Bjarnason (krýpur), Hilmir, Jóhann Friðgeirsson og Stefán Jón Óskarsson.
Álitið er vélritað á 2 pappírsarkir í folio stærð. Með liggur samhljóða afrit gerð með kalkipappír. Það varðar vegagerð á Hofsósi. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar sjúkraherbergi á Hofsósi. Dálítil ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar læknisbústað á Hofsósi. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Anna Erlendsdóttir og Stefanía Erlendsdóttir ásamt eiginmönnum og börnum. Þær voru dætur Erlendar verslunarstjóra í Grafarósi og Hofsósi. Anna var gift Jóni A. Ólafssyni verslunarmanni á Patreksfirði. Stefanía var gift Aðalsteini P. Ólafssyni, verslunarmanni á Patreksfirði.
Bréfið er handskrifað á 4 pappírsarki í A5 stærð. Efni bréfsins er saga hússins Sands á Hofsósi. Bréfið er blettótt og virðist hafa blotnað og runnið til.
Í þessu safni eru pappírsgögn, gögnin eru vel læsileg og eru flest í ágætu ásigkomulagi. Nokkrir bæklingar voru teknir úr safninu. Meðal annars voru þrú vinnuhefti fyrir stefnumótun kirkjunnar, tvö heftin voru fjarlægð þau voru óútfyllt, eina heftið sem var skrifað inn í fékk að vera áfram. Kirkjurit og Álit starfsháttarnefndar Þjóðkirkjunnar var fjarlægt, þar sem það þótti ekki tengjast safninu beint. Safnið var látið vera að óbreytt að öðru leyti. Í þessu safni eru pappírsgögn, gögnin eru vel læsileg og eru flest í ágætu ásigkomulagi. Nokkrir bæklingar voru teknir úr safninu. Meðal annars voru þrú vinnuhefti fyrir stefnumótun kirkjunnar, tvö heftin voru fjarlægð þau voru óútfyllt, eina heftið sem var skrifað inn í fékk að vera áfram. Kirkjurit og Álit starfsháttarnefndar Þjóðkirkjunnar var fjarlægt, þar sem það þótti ekki tengjast safninu beint. Safnið var látið vera að óbreytt að öðru leyti.
Í þessu safni er ein stílabók, vel læsileg og í ágætu ásigkomulagi. Búið er að fjarlægja megnið af blaðsíðunum úr en nokkar eru eftir, inni í bókinni er erindi frá prófasti Skagafjarðarprófastsdæmis.
Safn með nokkrum myndum af Hofsóskírku frá mismunandi tímabilum. Í safninu er gulnað og snjáð umslag sem á stendur "Hofsóskirkja vígð 28. ágúst 1960" inn í er mynd að Hofsóskirkju. Einig jólakor með mynd af kirkjunni- kortið er óútfyllt. Tómt umsslag frá Búnaðarbanka Íslands var fjarlægt úr safninu. Ágætlega varðveytt safn.
Safn sem inniheldur ýmisleg smáprent, sem dæmi; auglýsingabæklingar, einblöðungar, dagskrár, yfirlit yfir viðburði og kynningarefni er tengjast viðburðum og söfnum í Skagafirði. Úr safninu var grisjaðir kynningarbæklingar og mánaðaritið "Heima er bezt" 10, 1985, auglýsinga- og dagskráritið Sjónhornið og kynningarefni þar sem voru tvö eintök. Einnig var fjarlægt allt efni sem tengdist Skagafirði ekki beint. Í sumum tilvikum voru bæklingar og rit merkt skjalamyndara ásamt dagsetningu og ártali. Hefti voru fjarlægð úr einstökum ritum að undanskyldum þykkri ritum sem var leyft að halda sér óbreyttu. Safnið er vel varðveitt.