Bréfið er handskrifað á pappírsörk í stærðinni 12,7x8,8 sm. Um er að ræða pappaspjald merkt Jónasi Kristjánssyni lækni og forseta Náttúrulækningafélags Íslands. Það er gatað með einu gati og stílað á Sigurð.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð, bréfsefni safnsins. Það varðar vöðtöku á gögnum sem skólinn afhenti safninu í júní árið 1993. Með liggur listi yfir gögn afhent árið 1988 frá héraðsskjalaverði og listi yfir gögn afhent árið 1999 frá skólastjóra.
Bréf frá Halli Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Hallur skrifar frá Vestmannaeyjum þar sem hann dvelur. Segir Sigurði frá því að hann sé búinn að fá sér hjól en spyr jafnan frétta að heiman, bæði varðandi búskapinn og hvernig landskipti hefðu farið fram eftir að prófasturinn kom í heimsókn.
Inngöngubréf frá Laugarvatnsskóla til Gunnlaugs þar sem honum er veitt skólavist n.k. vetur gegn þeim skilyrðum sem upp eru talin í bréfinu. Í bréfinu er meðal annars tekið fram að nemendur skuli vera vel hraustir, hafi siðferðisvottorð frá málsmetandi manni og neyti hvorki áfengra drykkja né tóbaks á meðan þeir dveilja í skólanum.Einnig er talið upp hvað nemendur þurfi að hafa meðferðis í skólann og hvaða reglur gildi um dvöl þeirra í skólanum.
Bréf frá Jóni Sigurðssyni alþingismanni. Jón skrifar Gunnlaugi varðandi leiðréttingar á fjártölum og segir bæði Gunnlaug og Steinunni móður hans fá leiðréttingar á uppeldisstyrk á lömbum sem voru sett á haustið 1941.
Bréf frá Jónasi bróður Halls. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann býr og starfar. Þeir eru að skrifast á um bíl sem Jónas hefur skoðað fyrir Hall.
Bréf frá Árna Guðmundssyni fyrrverandi skólastjóra Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni. Árni var fæddur á Sauðárkróki. Guðjón og Árni virðast hafa skrifast á árlega á 11 ára tímabili.
Gögn sem komu úr fórum Rögnvaldar Jónssonar: Fjallskilareglugjörð fyrir Skagafjarðarsýslu frá 1906. Verðlagsskrá fyrir Skagafjarðarsýslu frá 16. maí 1935 - jafnlengdar 1936. Félagsmannatal Kaupfélags Skagfirðinga frá 1950. Bréf frá innlánsdeild Kaupfélags Skagfiðinga - e.d.
Gögnin skiptast annars vegar í persónuleg gögn og hins vegar í gögn Fiskifélagsdeildar Hofshrepps á Hofsósi. Gögn fiskifélagsdeildar Hofshrepps innihalda fundargerðir (bók og á lausum síðum) og uppkast að lögum. Persónulegu gögnin innihalda ljósmyndir, sígarettumyndir, samúðarskeyti, sendibréf, hjónavígslubréf og vitnisburð um einkunnir í skóla.
Bréf Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra til Sjálfsbjargar í Skagafirði. Um er að ræða 46 bréf frá árunum 1966-1981. Með liggja 3 reikningar og nokkur fylgigögn.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það er á bréfsefni ráðuneytisins og undirritað af Baldri Möller. Bréfiið varðar styrk til bókasafns Skagafjarðarsýslu.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, bréfsefni oddvita Sauðárkrókshrepps. Það varðar framfærslu þurfalings. Með liggur afrit af samningi um framfærslu.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Efni þess eru fréttir af fjölskyldu Eiríks og sumarleyfi hans á Suðurlandi. Einnig biður hann Pétur um efni í blaðið Heima er bezt. Ástand skjalsins er gott.