Frá talningu atkvæða í alþingiskosningunum vorið 1983. Talning í kjördæminu fór fram í Bifröst og var útvarpað. Á myndinni er Katrín Pálsdóttir fréttamaður RÚV við hljóðnemann ásamt óþekktum tæknimanni. Þorbjörn Árnason í bakgrunni.
Sjónvarpsfólk frá bandarísku stöðinni ABC var á ferð í Skagafirði í júní 1992 við tökur á efni í vinsælan sjónvarpsþátt sem heitir "Ferðast með ríka og fræga fólkinu". Fyrir hópnum fór Amanda Bears þekkt sjónvarpsstjarna. Þessi þáttur er sýndur í 25 löndum auk Bandaríkjanna.
Frá heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur forseta til Skagafjarðar í ágúst 1991. Á mydinni er Vigdís að skoða málverkasyningu í Safnahúsinu. Með henni á myndinni t.v. eru hjónin Gyða Jónsdóttir og Ottó Michelsen. Þá má sjá t.h. Björn Björnsson og svo á hlið Halldórs Þ. Jónssonar sýslumanns.
Frá biskupsvígslu sr. Sigurðar Guðmundssonar á Hólum 28. júní 1982. Á myndini er sennilega kór Grenjaðarstaðakirkju að ganga til kirkju, en þar þjónaði Sigurður áður.
Í október 1988 söng Kirkjukór Glerársóknar í Sauðárkrókskirkju. Að messu lokinni söng kórinn ásamt Kirkjukór Sauðárkrókskirkju á tröppum kirkjunnar. Stjórnandi er Jóhann Baldvinsson (lengst til vinstri).
Óþekkt athöfn í Sauðárkrókskirkju. Í röðinni t.v. er Jón Jóhannsson meðhjálpari næstur og Inga Valdís Tómasdóttir þriðja, þá sér bak sr. Hjálmars Jónssonar og sennilega er Ólafur Skúlason biskup fyrir altarinu og sr. Sigurður Guðmundsson t.h.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir koma á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á Alexandersflugvelli að heilsa framáfólki bæjarins.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð á Sauðárkróki í júií 1997. Á myndini eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Kaupfélag Skagfirðinga bauð lífeyrisþegum Samvinnulífeyrissjóðsins í Skagafirði í sumarferð í júlí 1995. Farið var til Siglufjarðar og Fljótin skoðuð, komið við í Lónkoti þar sem verið var að afhjúpa minnisvarða um Sölva Helgason.
Í september 1992 tók til starfa að Dalatúni 6 vistheimili við sérdeildina í Gagnfræðaskóla Sauðárkróks. Umsjónamaður var Aðalheiður Reynisdóttir og er hún fjórða frá hægri á myndinni. FJórði frá vinstri er Árni Heiðar Bjarnason.
Skagfirðingar, hugsanlega eldri borgarar á ferð í Lónkoti við minnisvarða um Sölva Helgason. F.v. Haraldur Hermannsson (sér á bak), Anna Pála Guðmundsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Kári Steinsson (fjær), Hrólfur Jóhannesson, Magnús Jónasson, Birna Guðmundsdóttir, Ágústa Jónasdóttir t. v. við súluna. Aðrir óþekktir.
Sama myndefni og no 381, Hestamannamót á Vindheimamelum. F.v. Guðmundur Sveinsson, Einar Öder Magnússon, Herdís Einarsdóttir, Sverrir Sigurðsson, (Halldór Viktorsson), (Gunnar Arnarsson) og Sveinn Guðmundsson stendur t.h. með bikar. Hestar óþekktir.
Stúdentaútskrift hjá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Jón Hjartarson skólameistari í fremstu röð fyrir miðju. Þriðji frá vinstri í neðstu röð er Hallgrímur Eymundsson frá Saurbæ.
Dagskrá tileinkuð Guðrúnu frá Lundi var haldin í Bifrörst í vetrarbyrjun 1996. F.v. Árni Guðmundsson (stendur) þá Jón Hallur Ingólfsson, tvær stúlkur óþekktar og Elsa Jónsdóttir lengst t.h.
Óþekkt samkoma í Fyrirlestrarsal Fjölbrautasalans. Á fremsta bekk Árni Ragnarsson t.v. og þorbjörn Árnason t.h. Á öðrum bekk f.v. Vigfús Vigfússon, óþekktur, Jón E. Friðriksson, Sigurjón Rúnar Rafnsson og óþekktur. Á þriðja bekk María Ásbjarnardóttir, (Sigrún M. Gunnarsdóttir) og Einar Svansson. Á fjórða bekk Brynjar Pálsson. Knútur Aadnegard á sjötta bekk og Frímann Guðbrandsson aftastur.
Hópur barna á skautum á Skagaströnd. Talið frá vinstri: Tinna Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Þórður Óskarsson, Stefán Agnar Gunnarsson. Fyrir framan er Katrín Björk Guðmundsdóttir.
Stjórnendur og starfsmenn Vörumiðlunar. F.v. Jón Eðvald Friðriksson, óþekktur, Baldur Ingi Baldursson, Sigurjón Rúnar Rafnsson, Valdimar Bjarnason, Hafsteinn Hannesson, Emil Hauksson, Magnús Svavarsson, Einar Guðmundsson, Hallgrímur Blöndal Flóventsson og Björn Magni Svavarsson.
Óli Björn Kárason (1960-) ritstjóri flytur fyrirlestur um "hvernig miðla á fréttum" á námskeiði á Sauðárkróki í maí árið 1996. Sams konar mynd nr 1261.
Frá ferð blaðamanna upp á Skálfelljökul og að Jökulsárlóni í boði Jöklaferða og innanlandsflugi Flugleiða í júlí 1990. Konan lenst t.v. gæti verið Soffía Káradóttir.
Mjólkurframleiðendur sem löggðu inn hjá mjókurstöðinni á Blönduósi 1992 heiðraðir fyrir úrvalsmjólk, en til þess að fá þessa viðurkenningu þarf öll mjólk ársins að vera með með mjög lága gerla og frumutölu. Framleiðendurnir 7 sem fengu þessa viðurkenningu eru, frá Neðri-Harastöðum, Hlíð í Skagahreppi, Auðólfsstöðum, Austurhlíð, Blöndudalshólum, Steiná III og Hvammi í Ásahreppi.
Í tilefni sýningarinnar "Konur á Króknum" sem sett var upp í Barnaskólanum við Freyjugötu sumarið 1997. F.v. Jón Ormar Ormsson, Páll Brynjarsson og Jón Þórisson, en hann sá um uppsetningu sýningarinnar ásamt Kvennfélagi Sauðárkróks. Myndin tekin á Freyjugötunni.
Frá veiðidegi fjölskyldunnar á Sauðárkróki, ár ? Þeir þrír til vinstri eru þeir sem veiddu stærstu fiskana. F.v. Gunnar Andri Gunnarsson, Ingimar Hannesson og Gísli Kristjánsson.
Þorrablót í Félagsheimilinu á Blönduósi. F.v. Einar Svavarsson og Sigríður Hermannsdóttir Hjallalandi, Sigríður Höskuldsdóttir Kagaðarhóli, Lúther Olgeirsson Forsæludal, Valgarður Hilmarsson Framstagili, og Stefán Á. Jónsson Kagaðarhóli.
Þorrablót á Ketilási í Fljótum í janúar 1997. "Hrútasýning". F.v. Rikharður Jónsson Brúnastöðum, Inga Jóna Stefánsdóttir, Þórður Axelsson, Bergþóra Pétursdóttir Stórholti og óþekktur hrútur, gæti verið Númi Jónsson.