júní 1954. Börn á leið á íþróttavöllinn við Grænuklauf til hátíðarhaldanna. (Sama mynd og KCM 3). Líka tilg. um að þetta sé skrúðganga frá kirkju til sundlaugar þegar sundlaugin var vígð 11. júní 1957. Fánaberi er sennilega Kári Steinsson og Guðjón Ingimundarson t.v. við skrúðgönguna.
Jóhann Eiríkur Jónsson Fæddur á Sauðárkróki 19. ágúst 1921 Látinn 20. mars 2004 Var á Siglufirði 1930. Heimili: Sauðárkrókur. Var á Beinakeldu í Torfalækjahr. - A-Hún. 1957. Bóni og frjótæknir á Beinakeldu. Síðast bús. þar.
Frá vinstri Birgir Guðjónsson (1948-) með Fiskiðjubikarinn árið 1965. Bikarinn hlaut hann fyrir flest stig á Norðurlandsmóti í sundi. Til hægri Sigurður Marteinn Friðriksson (1924-2011)
Grettissund var háð í Sauðárkróks sundlaug í lok júlí árið 1967. Frá vinstri Ingimundur Ingimundarson synti á 8:43:3 og Birgir Guðjónsson sem synti á 6:51:4
Karlakór Sauðárkróks að syngja fyrir Sauðkrækinga á 17. júní 1964 F. v má þekkja. Hreinn Jónsson - Guðmann Tóbíasson - Bragi Haraldsson - Hilmar Jónsson - Sveinn Sölvason - Björgvin Jónsson - Páll Sigurðsson (á bak við Björgvin) Sverrir Svavarsson - Steindór Steindórsson - Kristján Sölvason - Sverrir Björnsson - Svavar Helgason og Ásgrímur Helgason. Stjórnandi er Ögmundur Svavarsson. Jón Friðbjörnsson t.v. með hatt og gleraugu.
F. h. Svava Svavarsdóttir - Hólmfríður Friðriksdóttir - Oddrún Guðmundsdóttir - Steinunn Ingimundardóttir - Hallfríður Guðmundsdóttir - Hrafnhildur Stefánsdóttir - óþekkt - óþekkt og Ingibjörg Lúðvíksdóttir. Allar úr UMF Tindastóli. Aðrar óþekktar. Fánaberi Stefán Guðmundsson. Handknattleiksmeistaramót Íslands á Sauðárkróki.
Horft frá Suðurgötu til norðausturs. Sæmunargatan í bakgrunni, barnaskólinn við Freyjugötu fyrir miðri mynd, kjörbúð KS (nú ráðhúsið) og hús við Suðurgötuna fremst á myndinni.
Fyrsta stofnfundargerðabók sem er harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í nýrri kápu en blaðsíður eru gulnaðar og nokkuð rifnar svo bókin er í lélegu ástandi. Aftast í bók er skráning frá 1915 Leikrit og munir sem Hið skagfirska félag á og svo upptalning á því. Hefur verið ritað síðar.
Harðspjalda handskrifuð fundargerðabók í lélegu ástandi. Kápa er laus frá en er með límborða sem heldur bók saman. Bókin er bundin saman með bandi og los á blaðsíðum og nokkrar alveg lausar.
Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í nokkuð góðu ástandi. Bókin er bundin með bandi og fremstu tvær blaðsíður hafa verið klipptar en blaðsíður nokkuð krassaðar. Aftari bókakápa með broti í horni.
Harðspjalda handskrifuð fundageraðbók í góðu astandi en lítillegt los á fremstu blaðsíðum. Bókin segir frá síðustu árum félagsins sem vitað er af í þessum gögnum.
Sjö harðspjalda handskrifaðar fundabækur í misgóðu ástandi en allar nema ein eru með límmiða á kili. Stofnun félagsins og starfsemi er rituð hér og gaman að lesa.
Kjörskrá Sauðárkróks 1966. Skráin er prentuð á gatapappír með þykkri kápu utan um. Kjörskráin er án ártals, en er líklega frá árunum 1951966, þar sem flestar skrár í safninu eru frá því árabili. Ástand skjalsins er gott.
Íbúaskrá Sauðárkróks árið 1958. Prentuð á gatapappír og kápa úr þykkum pappír utan um. Inn í skrána eru færðar ýmsar upplýsingar. Ástand skjalanna er gott.
Innbundnar og handskrifaðar bækur, fundagerðabók, dagbók og lítið notuð bókhaldsbók. Í safninu er einnig vélrituð og handskrifuð pappírsgögn, reikningur og bókhaldskvittanir. Einnig var á meðal skjalanna og bókanna persónuleg gögn úr db. Egils Helgasonar. Safnið er alt vel læsilegt og ágætlega varðveitt og margt áhugavert sem hægt er að lesa í fundagerðum félagsins og í dagbókinni.
Líklega frá áramótunum 1979-1980. Hefð var fyrir ólátum á Sauðárkróki á þessum tíma þar sem menn skipuðust í lið og slógust. Þarna átti að stoppa þessi læti í eitt skipti fyrir öll með sameiginlegu átaki.
Nokkrar teikningar af íbúðarhúsi ásamt teikningum af einstökum byggingarhlutum eftir Ásmund Sveinsson. Merkt Iðnskóla Sauðárkróks. Líklega um prófverkefni að ræða.