Showing 634 results

Archival descriptions
Guðlaug Arngrímsdóttir: Skjalasafn
Print preview Hierarchy View:

428 results with digital objects Show results with digital objects

Mynd 79

Aftan á mynd er skrifað: Elín's friend, Elín at her graduation (B.N.), Cathy Johnson (my niece, brother, Doris daughter)

Mynd 79

Ekki vitað hvaða fólk þetta er. Aftan á mynd má sjá óljósa skrift þar stendur m.a "Dúnda litla segir ég er en þá svo lítil".
Svo er óljóst framhald á skrift. En lýkur á "vertu sæl mamma mín."

Mynd 85

Mynd tekin í Húsmæðraskólanum í Reykjavík á skólaönninni 1949-1950. Guðlaug gekk í Húsmæðraskólann og er hún sennilega lengst t.h.

Mynd 91

Skarphéðinn G. Þórisson (hreindýraeftirlitsmaður) og fyrri kona hans Unnur Dóra Norðfjörð. Skarphéðinn var sumarstrákur í Litlu-Gröf.

Mynd 96

Sennilega konur úr Garðyrkjufélagi Skagafjarðar staddar á Hofi í Vatnsdal.
Fremstu þrjár f.v. (Tilg. Elsa Geirlaugsdóttir), Jóna Jónsdóttir, Varmahlíð, Kristín Sigurðardóttir Syðri-Húsabakka.
Mið röð f.v. Auður Vilhelmsdóttir, Guðlaug Arngrímsdóttir, Guðbjörg Felixdóttir, Daufá, Sigurlaug Jónsdóttir, Minni-Ökrum og Hjördís Tobíasdóttir, Geldingaholti.
Aftasta röð f.v. Sigrún Þorsteinsdóttir, Flugumýrarhvammi, Valdís Óskarsdóttir, Brekku, Jófríður Tobíasdóttir, Geldingaholti, Ásdís Björnsdóttir, Ögmundarstöðum, Sigrún Alda Sighvatsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Marbæli og Edda Vilhelmsdóttir.
Myndasmiður óþekktur.

Myndir 176

Þóra Benediksdóttir fyrir miðju. Hin börnin eru óþekkt.
Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður sínum Benedikt Jónssyni. Móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir urðu eftir á Íslandi.
Þóra var fædd 1884 á Syðri-Brekkum, d. 1953 í Vesturheimi.

Myndir 185

Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri; Magnús Blöndal, Arngrímur Sigurðsson, Sigríður Benediktsdóttir, Þórir Arngrímsson. Fyrir framan stendur Guðlaug Arngrímsdóttir.

Myndir 186

Aftan á mynd er skrifað: "Halldór, Björn, Gunnar. Probably taken in Winnigpeg in 1890s".

Tillaga: Þetta eru synir Jóns Benediktssonar (sonur Benedikts Vigfússonar prófast á Hólum í Hjaltadal) sem flutti til Ameríku ásamt sonum sínum. Sjá Skagfirzkar æviskrár bók 1850-1890 - I, bls 130

Myndir 191

Benedikt Jónsson- Benediktssonar- Hólum í Hjaltadal (situr) og sonur hans Björn Benediktsson (stendur).
Benedikt Jónsson var afi Guðlaugar Arngrímsdóttur Litlu-Gröf.

Ný matreiðslubók. Fyrir fátæka og ríka

Ný matreiðslubók. Fyrir fátæka og ríka. Eftir Jóninnu Sigurðardóttur. Með heilsufræðislegum inngangi eftir Steingrím Matthíasson héraðslækni. Prentsmiðja Björns Jónssonar. Akureyri.

Inni í bók voru blaðasneplar, með uppskriftum og úrklippa úr dagblaði.

Rímur og skopmyndir

Póstkort og rímnahefti sem brotin voru saman.

Á brefspjaldi eru tvær skopmynd af Birni Jónssyni (1846-1912) ráðherra Íslands 1909-1911. Fyrir neðan myndirnar eru rímur.

Rímnahefti er 10 blaðsíður. Nafn höfundar kemur ekki fram.

Results 511 to 595 of 634