Skissa af manni á hesti með sérkennilegt skýjafar í bakgrunni. Á myndina er skrifað: „Stund og staðir 10. rödd (eða kvæðabók.)“. Á hann þá væntanlega við Kvæðabók Hannesar Péturssonar og kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá um 1955-1962.
Skissa af Reykjarvíkurhöfn - þar sem hvít skúta er mest áberandi. Í bakgrunni má sjá Esjuna - Kistufell og Mosfell. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Óklárað málverk af krökkum á leið upp Nafirnar á Sauðárkróki með flugdreka - neðst til vinstri má sjá Sauðárkrókskirkju. Myndin er líklega máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1970-1980.
Málverk af bíl keyra niður götu í Reykjavíkurborg - mögulega Bankastræti. Í bakgrunni má sjá það sem virðist vera Landakotskirkja. Myndin virðist vera máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Málverk af trjám í húsagarði - þar sem húsið sést til hægri. Neðst til vinstri á myndinni má sjá bláklædda manneskju. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Óklárað málverk af manni - ásamt tveimur hestum - á ferð um landslag - óvíst hvar. Í bakgrunni má mögulega sjá jökul. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Tvennar abstrakt skissur. Sú efri virðist vera af einhverskonar fígúrum - litasamsetningin er svört - græn - fjólublá bleik og blá. Sú neðri er af nokkrum bláum hringum á svörtum bakgrunni. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Þrennar abstrakt skissur. Sú efri sem - sem er einnig stærst - virðist vera af fjalli með gulan hring neðst. Sú neðri til vinstri er nokkrar marglitar doppur á svörtum bakgrunni. Sú neðri til hægri er brúnleit með grænan ramma. Óvíst er hvort skissurnar eru eftir Jóh. Geir. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Tvennar abstrakt skissur. Sú efri er - sem er jafnframt stærri - er brúnleit með svörtu sporöskjulaga formi með bleikum lit í miðjunni. Sú neðri er grænleit - grá og blá. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Þrennar abstrakt skissur. Sú fyrsta er í efra vinstra horni blaðsins. Hún er blá - græn og fjólublá/vínrauð á lit. Hægra megin á blaðinu - fyrir miðju - er önnur myndin. Hún er rauð - svört og fjólublá/vínrauð á lit. Sú þriðja er í neðra hægra horni blaðsins. Hún er blá - rauð og svört. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Tvennar kyrralífsmyndir af uppstillingu á flöskum og ávöxtum. Sú sem er vinstra megin er minni en sú sem er hægra megin og um hana er svartur rammi. Sú sem er hægra megin er litrík m.a. með bláum - rauðum og gulum litum. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Dökkleit abstrakt skissa - líklega af dýrum og manni sem stendur fyrir miðju. Neðst á myndinni stendur: „60 x 67.5“. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1980.
Myndefnið er tveir hestar í forgrunni - einn rauður og annar grár. Lítið hús má sjá handan við á og fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Maður stendur á palli vörubíls. Bæði hlið pallsins á vörubílnum og tunnan - sem stendur fyrir neðan hann - eru skær appelsínugul. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Horft yfir lítinn vog eða fjörð. Í forgrunni er grjót - mögulega varnargarður og handan við voginn er lítið fjall. Staðsetningin er ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Landslagmynd með ljósan (gulleitan) himinn og dökkleita jörð. Þar má greina óljósan bát og líklega hús eða skúr. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Séð aftan á vörubíl sem keyrir eftir vegi upp hæð. Hægra megin við vörubílin má sjá rykið sem hefur þyrlast upp eftir hann. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Tvennar abstrakt skissur. Sú vinstra megin er samsett úr brúnum - rauðum og gulum en sú hægra megin er samsett úr svörtum - gráum - fjólubláum og gulum. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Tvennar abstrakt skissur. Sú efri er vínrauð - græn og svört og virðist vera landslagsmynd. Sú neðri er me samskonar liti og sú efri nema myndefnið öðruvísi - mögulega af manni. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Tvennar abstrakt skissur. Sú efri - jafnframt sú stærri - er samsett úr nokkrum litum sem ganga í bylgjum úr efra vinstra horni til neðra hægra horns. Á þeirri neðri er grænt sporöskjulaga form fyrir miðju en bæði að ofan og neðan er gráleitur litur - hægra megin við græna formið er drapplitaður litur. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Tvennar kyrralífsmyndir af uppstillingu á flöskum og ávöxtum. Á þeirri sem er vinstra megin er einungis búið að teikna útlínur myndarinnar. Sú sem er hægra megin er litrík m.a. með bláum - rauðum - grænum og bleikum tónum. Fyrir neðan er búið að teikna glas sem liggur á hlið. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Þrennar abstrakt skissur. Sú fyrsta - í efra vinstra horni - er grá - svört - grænblá - beik og hvít á lit. Önnur skissan - í efra hægra horni - er grá - bleik - brún og svört á lit. Þriðja skissan - í neðra vinstra horni - er grágræn - svört - sinnepsgul - grá og vínrauð á lit. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Tvær abstrakt skissur. Sú fyrsta er gróf skissa af rauðum hlut á bláum bakgrunni. Önnur skissan - í efra hægra horni - er bleikur hringur umvafin öðrum svörtum hring á dökkgrænum bakgrunni. Skissan er í svörtum ramma. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Dökkleit landslagsmynd - með ljósu fjalli og örlítið gulleitann himinn. Myndin virðist vera máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Mynd af bátum á landi - annar á hvolfi - óvíst hvar - mögulega við Ægissíðu. Tvær gæsir eru í forgrunni og tveir skúrar í bakrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Mynd af vegi sem hlykkjast í gengum hæðótt landslag - hverfur fyrir miðju myndar og birtist svo á ný við efra hægra horn myndar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Þrjár skissur eru á spjaldi. Tvær þeirra eru samskonar - þar sem maður situr álútur á stól með hendur í skauti sér. (Þetta er mögulega æfingarskissa af Jónasi Svafár.) Þriðja myndin er sýnilega yngri en hinar þar sem hún er að hluta til skissuð yfir höfuð mannsins á einni myndinni. Þar er maður að framkvæma eitthvað eða við e.k. iðn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Málverk af sólinni skína yfir því sem virðist vera þrír skúrar - óvíst hvar. Myndin virðist vera máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Óklárað málverk af hestum á beit í landslagi - óvíst hvar. Umhverfis þá er grjót og í bakgrunni er hagi og þar handan eru fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Óklárað málverk af höfn - óvíst hvar. Við höfnina liggja tvö skip og handan við fjörðin má sjá stórt fjall. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.