Óklárað málverk af manni standa við lítið bál - óvíst hvar. Í bakgrunni er einhverskonar veggur - líklega stífla. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1970-1980.
Ókláruð landslagsmynd af því sem virðist vera klettar - óvíst hvar. Í forgrunni má sjá manneskju á gangi en í bakgrunni er stórt fjall. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Ókláruð landslagsmynd af dökkleitu landslagi - óvíst hvar mögulega Heiðmörk. Í bakgrunni má sjá fjall sem gæti verið Esjan. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Óklárað málverk af fjórum manneskjum á hestbaki við Elliðárlón. Í bakgrunni má sjá Breiðholtið og Borgarspítalann. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1993-2003.
Óklárað málverk af manneskju á hestbaki - líklega á höfuðborgarsvæðinu. Manneskjuna má sjá í neðra vinstra horni - fyrir miðju má sjá húsaþyrpingu og í bakgrunni má sjá fleiri byggingar og Esjuna. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Óklárað málverk af tveimur hestum á beit í haga - líklega í grennd við höfuðborgina. Í bakgrunni má sjá rafmagnsstaura og fjölda bygginga. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1985-1995.
Óklárað málverk af háu litlu húsi - óvíst hvar - líklega í einhversstaðar í Evrópu. Í bakgrunni má sjá ræktað land. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Ókláruð landslagsmynd - óvíst hvar. Í forgrunni má sjá veg - fyrir miðju má sjá vatn/á en í bakgrunni fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Ókláruð landslagsmynd - líklega frá Skagafirði. Í forgrunni má sjá runngróður en í bakgrunni eru fjöll - líklega Blönduhlíðarfjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Málverk af nokkrum húsum við sjávarsíðuna - handan við fjörðin má sjá fjöll. Staðsetning ókunn - mögulega Sauðárkrókur. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1945-1955.
Óklárað málverk af óljósu myndefni - mögulega húsaþök í bæ/borg að nóttu til.Myndin er mjög dökkleit. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Óklárað málverk af götu - líklega í Þingholtunum í Reykjavík. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Landslagsmynd þar sem virðist vera flatlendi í forgrunni en fjall í bakgrunni - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Óklárað málverk með húsi/kofa í forgrunni en fjöll í bakgrunni - líklega Blönduhlíðarfjöll í Skagafirði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Kyrralífsmynd af tveimur perum á borði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Myndefni er óljóst en virðist vera kyrralífsmynd þar sem flaska er í forgrunni. Á hinni hlið myndar er gróf skissa af hestum á beit í haga. Myndin gæti verið frá 1950-1960.
Skissa af bíl sem ekur eftir götu í fjölbýli - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Skissa af hestum við hús. Myndin er fremur óljós en tveir hestana eru áberandi í forgrunni ofg byggingar í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af bát sem liggur á fjöru við hliðiná húsi/skúr. Þar sem smá sót er á bakhlið myndarinnar er hún líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Bæjarmynd þar sem horft er yfir húsþök og fyrir miðju myndar má sjá kirkjuturn. Staðsetning ókunn - mögulega í Hafnafirði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Myndefnið er fremur óljóst. Á myndinni er akur og fyrir miðju má greina hús. Í forgrunni er líklega grjót (mögulega hestur). Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Mynd af vegi sem liggur af brú sem er til hægri fyrir miðju myndar - upp hæð að vinstra efra horni. Á veginum eru fjórir ljósastaurar. Í forgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir mynd og undir brúnna til hægri. Til vinstri eru hús. Myndin gæti verið frá 1960-1970.