Bréfið er handskrifað 6 pappírsarkir í A4 stærð. Það inniheldur upplýsingar vegna deilumála varðandi útgerð. Pappírinn er nokkuð óhreinn og ryðskemmdir eftir bréfaklemmur.
Bréfið er vélritað á græna pappírsörk í A4 stærð. Það varðar breytingar á samþykktum félagsins. Með fylgja breytingarnar, ásamt tilkynningu um samvinnufélag og samþykktum félagsins.
Bréfið er vélritað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Fremstu síðuna vantar. Efni bréfsins er ættfræði, störf Eiríks í prentsmiðju á Akureyri og fréttir af fjölskyldunni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar bréf sem móðir Minnu fékk frá fósturforeldrum sínum og einnig dagbók Steinunnar Ingibjargar Guðmundsdóttur. Með liggja tvö ljósrit úr dagbók og 21 pappirsörk í A4 stærð sem er uppskrift úr dagbók. Einnig ljósrit af umslagi sem bréfið frá Minnu hefur borist í. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það er á bréfsefni ráðuneytisins og undirritað af Baldri Möller. Bréfiið varðar styrk til bókasafns Skagafjarðarsýslu.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar beiðni um að láta gera við sjálfblekung Péturs, sem hann hyggst senda með bréfinu. Ástand skjalsins er gott.
Bréf til Maddýar frá Sigurði. Líklega er Maddý pennavinkona Sigurðar úr barnablaðinu Æskunni. Sigurður segir henni frá lífinu í Hátúni en þegar þetta er skrifað er faðir Sigurðar nýlega fallinn frá.
Bréf frá Halli Jónassyni til Gunnlaugs bróður hans. Hallur segir frá lífinu á Akureyri og spyr frétta úr Skagafirðinum. Hann segir Gunnlaugi að vera í sambandi við sig varðandi kaup á byggingarefni því mögulega sé ódýrara að fá efni á Akureyri og hann geti aðstoðað með flutning.